*Eignin er seld en þó með fyrirvara*RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna **- Rúmgóð íbúð - Rúmgóður Bílskúr - ÚTSÝNI -**Vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2.hæð í góðu fjölbýli með bílskúr á jarðhæð hússins. Mikið útsýni yfir borgina og til sjávar til vesturs.
Þvottahús er innan íbúðar með nýrri innréttingu -allir rafmagnstenglar endurnýjaðir, öryggi í rafm.töflu endurn., ný sérgreinatafla í eldhúsi, öll tæki í eldhúsi innan við ársgömul og einnig blöndunartækin á baðherbergi.
Allir ofnar innan íbúðar hafa verið endurnýjaðir. Bílskúr er rúmgóður með heitu og köldu vatni og er bílskúrshurðin sjálf rafdrifin. Bílskúr er við hlið inngangs í húsið og því bílastæði íbúðar við innganginn.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 121,2 fm og er íbúðarrýmið sjálft 85,0 fm, geymsla 8,7 fm og bílskúr 27,5 fm.**FASTEIGNAMAT NÆSTA ÁRS KR. 54.650.000.-** Innan íbúðar eru: Miðrými/hol, tvö svefnherbergi, baðherebergi, þvottahús, eldhús, stofa og borðstofa.
Í sameign eru:Sér-geymsla íbúðar, þurrkherbergi, sameiginleg geymsla, hjólageymsla og ruslageymsla.
Nánari lýsing eignar:Komið er inn í rúmgott flísalagt
hol sem er miðrými íbúðar með góðum fataskápum.
Herbergi 1 er á vinstri hönd og er það barnaherbergið með parketi á gólfi og fataskáp.
Herbergi 2 er hjónaherbergið sem er mjög rúmgott með parketi á gólfi og hvítum fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt og með innréttingu, baðkari, sturtu og er handklæðaofn. Blöndunartæki við baðkar og sturtu innan við ársgömul.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu björtu samliggjandi rými með flísum á gólfi. Innrétting með góðu skápaplássi er að hluta nýlega filmuð og öll tæki og blöndunartæki innan við ársgömul . Útgengt er úr borðstofu á rúmgóðar vestur svalir með útsýni yfir borgina, til sjávar og víðar.
Þvottahúsið er í holinu / miðrýminu og er nýleg hvít innrétting undir og við þvottavél og þurrkara.
Geymsla íbúðar er skráð 8,7 fm og er í sameign. Í sameigninni er einnig að finna þurrkherbergi, sameiginlega geymslu, vagna-og hjólageymslu og ruslageymslu.
Bílskúrinn er 27,5 fm
rúmgóður og er staðsettur við hlið inngangs í húsið og því bílastæði íbúðar við innganginn. Hann er bæði með venjulegri hurð og rafdrifinni og er heitt og kalt vatn.
Garður er gróinn og sameiginlegur Arahólum 2-6.
Um er að ræða rúmgóða og bjarta eign þar sem er stutt í alla þjónustu og skólar í göngufæri.
Stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir allt um kring.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Davíðsdóttir löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.Smelltu HÉR og skoðaðu heimasíðu mína og umsagnirHeimasíða RE/MAXGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
· Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk