Fasteignaleitin
Skráð 15. sept. 2026

Háihvammur 14 - íbúð 101

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
301.9 m2
7 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
195.000.000 kr.
Fermetraverð
645.909 kr./m2
Brunabótamat
152.350.000 kr.
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1980
Jarðhæð
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
2075188
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Kaupstaður fasteignasala kynnir í einkasölu HÁIHVAMMUR 14, 220 Hafnarfirði.

Einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr, búið er að útbúa þrjár íbúðir á neðri hæð sem eru í útleigu.

Húsið stendur í rólegu og grónu hverfi í Hvömmunum í Hafnarfirði, með útsýni yfir Hafnarfjörð og víðar.

Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit og önnur skjöl, fyrir nánari upplýsingar og tilboðsgerð.

Háihvammur 14, eignin skiptist í efri hæð 137.6m², neðri hæð 121.4m² og bílskúr 42.9m² samtals 301.9m² að stærð samkvæmt fasteignayfirliti HMS.

Í dag hefur verið lokað milli efri og neðri hæðar og nýtist húsið sem sér íbúð á efri hæð og þrjár íbúðir á neðri hæð sem allar eru í útleigu

Efri hæð: forstofa með físum á gólfi og skápum. Hol, stofa og borðstofa liggja saman harðparket á gólfi, mikið útsýni yfir Hafnarfjörð er úr stofuglugga, Útgengt er út á svalir frá borðstofu. Eldhús, harðparket á gólfi, innrétting, helluborð og vifta, ofn í vinnuhæð, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, borðkrókur. þrjú svefnherbergi, harðparket á gólfum. Hjónaherbergi er með fataskáp, fataskápur er öðru herberginu en ekki hinu. Skrifstofuherbergi (þar sem áður var stigi milli hæða), harðparket á gólfi. Baðherbergi flísar í hólf og gólf, hornbaðkar með nuddi (virkar ekki), sturtuklefi, vaskinnrétting, upphengt salerni og handklæðaonf, gluggar. Þvottahús, innrétting yfir heilan vegg með plássi fyrir tvær vélar, harðparket á gólfi.

Bílskúr með hita, rafmagni, vatni og hurðaopnara. Alllar lagnir eru fyrir hendi í bílskúr til að innrétta þar „íbúð" ef vill.

Neðri hæð:

Íbúð 1 (undir bílskúr): Alrými með inngangi, stofu og „kitchenette" harðparket á gólfi. Helluborð, háfur og ofn, vaskur og ísskápur. Herberg, harðparket á gólfi. Baðherbergi, vaskinnrétting, speglaskápur, salerni og sturtuklefi, flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél.

Íbúð 2: Forstofa, flísar á gólfi. Lítið eldhús, harðparket á gólfi. Stofa, parket á gólfi. Herbergi, harðparket á gólfi. Þvottahús með máluðu gólfi og sturtuklefa, gluggi. Snyrting flísar á gólfi, vaskinnrétting og salerni.Geymsla (þar sem tröppur liggja niður frá efri hæð), parket á gólfi.

Íbúð 3. Eldhús (inngangur er þar), flísar á gólfi, innre´tting með helluborði, viftu og ofni, ísskápur. Stofa með harðparketi. Herbergi með harðparketi og fataskápum. Lítil geymsla. Baðherbergi, flísar á gólfi, vaskinnrétting, speglaskápur, upphengt salerni „walk inn" sturta.

Lóð er frágengin, hellulagt bílaplan með hitalögn, pláss fyrir fjórar bifreiðar. Aðkoma að neðri hæð er um steyptan stiga niður með hlið bílskúrs.

Háihvammur 14 er steypt, skráð einbýlishús á tveimur hæðum. Ytra byrgði er steypt og málað, timburgluggar og hurðar, járn er á þaki. Húsið stendur á 771.4 leigulóð á erfðafestu frá 1. nóvember 1980, frá Hafnarfjarðarbæ.

Framkvæmdir síðustu ára:

2016: Þak málað.

2017: Gluggar, hurðir og þakkantur málað.

Ekki liggur fyrir hvort umrædd nýting „íbúða" á neðri samrýmist kröfum opinberra aðila, eins og heilbrigðis og byggingaryfirvöldum, enda eignin skráð sem einbýlishús og þær ekki skráðar sem íbúðir. ATH eigninni hefur verið breytt frá upprunalegum samþykktum teikningum.

Fasteignasali hefur ekki komið í neðri hæð eignarinnar og byggir söluyfirlit þetta því á opinberum upplýsingum ásamt upplýsingum frá seljandum.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður

Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.

Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða kaupstadur@kaupstadur.is

DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
15/10/201877.400.000 kr.90.000.000 kr.301.9 m2298.111 kr.
01/07/201457.500.000 kr.58.000.000 kr.301.9 m2192.116 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (64)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Apalskarð 2
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Apalskarð 2
Apalskarð 2
221 Hafnarfjörður
124 m2
Fjölbýlishús
413
725 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 2
Bílastæði
Skoða eignina Apalskarð 2
Apalskarð 2
221 Hafnarfjörður
119.6 m2
Fjölbýlishús
433
735 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Apalskarð 2
Bílastæði
Skoða eignina Apalskarð 2
Apalskarð 2
221 Hafnarfjörður
122.3 m2
Fjölbýlishús
413
727 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Sólvangsvegur 3
60 ára og eldri
Skoða eignina Sólvangsvegur 3
Sólvangsvegur 3
220 Hafnarfjörður
50.8 m2
Fjölbýlishús
11
943 þ.kr./m2
47.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin