Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2026

Sogavegur 192

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
97.8 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.900.000 kr.
Fermetraverð
837.423 kr./m2
Brunabótamat
41.400.000 kr.
Byggt 1954
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20358811
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

*** Eignin er seld og var aðeins 4 daga á söluskrá ***

Þú og fasteignamarkaðurinn – ekki láta þér fallast hendur, við finnum út úr þessu saman!


Heimili fasteignasala og Ragnar Þorgeirsson löggiltur fasteignasali (s. 774 7373 / ragnar@heimili.is) kynna mjög fallega 97,8 fm. miðhæð með sérinngangi innst í rólegum botnlanga á Sogaveginum.  Ný eldhúsinnrétting, allt nýtt í þvottahúsi, gólfefni nýleg og ekki langt síðan allt var málað.  Skjólgóður sólpallur er við húsið, sem umvafið er gróðri á þessum skjólsæla stað í 108 Reykjavík. Sannkölluð dekureign sem ber með sér öll merki nosturs og góðrar umgengni. 
Sjáið myndirnar!


Forstofa með hengi og skáp.  Samliggjandi stofa og borðstofa og þaðan gengið út á pallinn.  Tvö góð svefnherbergi með skápum, endurnýjað baðherbergi og nýstandsett þvottahús innan íbúðar. Í nýrri eldhúsinnréttingu er gott skápapláss og öll tæki ný, þ.m.t. ísskápur og uppþvottavél sem fylgja.  Þvottahús er inn af eldhúsi, Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð og gott skápapláss, auk þess sem þar er innfelldur frystiskápur sem fylgir. Við innkeyrslu er u.þ.b. 10 fm. óskráður geymsluskúr.
 
Unnið er að gluggaskiptum á norðurhlið hússins. Um er að ræða baðherbergis-, eldhús- og þvottahúsglugga hæðar. Seljandi greiðir hlut íbúðar í þeim framkvæmdum.  Samkv. seljanda hefur á nokkru árabili verið unnið að ýmsum framkvæmdum við húsið og íbúðina sjálfa;
2025 - Rofar og tenglar endurnýjaðir og settir nýjir gólflistar.
2024 - Austurhlið hússins drenuð að nýju.
2024 - Eldhús og þvottahús endurnýjað og hluti baðherbergis endurnýjað. Íbúð öll máluð sem og gluggar og innihurðir málaðar. Skipt um gólfefni og undirlag í eldhúsi.
2023 - Byggður óskráður geymsluskúr á lóð (við enda á innskeyrslu) ca. 10fm.
2018 - Byggður pallur og tröppur niður í garð frá stofu. ATH; Pallurinn er séreign íbúðar.
2017 - Skipt um parket og undirlag. Skipt um ofn í borðstofu.
2016 - Dren sett í kringum húsið og skólplagnir endurnýjaðar.
2012 - Ýmsar viðgerðir á húsinu s.s. Gert við sprungur og málað utan.  Þak yfirfarið og málað. Þakrennur endurnýjaðar og gert við tröppur. Á sama tíma var skipt um nokkra glugga í risi og skipt um gler og lista í stofu og svefnherbergi á þessari eign.

Fágætt tækifæri til að hreiðra um sig í vel búinni eign á þessum eftirsótta stað í borginni.  Skólar, leikskólar, verslanir og fjölbreytt þjónusta í göngufæri.
Nánari upplýsingar veitir Ragnar Þorgeirsson í síma 774 7373 eða ragnar@heimili.is

 


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Heimili fasteignasala
http://www.heimili.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Snæland 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Snæland 2
Snæland 2
108 Reykjavík
98 m2
Fjölbýlishús
413
877 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Drápuhlíð 30
20251103-_OA_6586.jpg
Skoða eignina Drápuhlíð 30
Drápuhlíð 30
105 Reykjavík
107.9 m2
Fjölbýlishús
412
899 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Tjarnabraut 16
260 Reykjanesbær
100.5 m2
Fjölbýlishús
413
596 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Iðufell 4
Efsta hæð
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Iðufell 4
Iðufell 4
111 Reykjavík
83 m2
Fjölbýlishús
312
625 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin