Lögeign kynnir eignina Lóulundur 1, 671 Kópasker, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 231-5188 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Um er að ræða 73,80 M² sumarhús með þremur svefnherbergjum ásamt gestahúsi við hliðin á eigninni sem er með stofu, svefnherbergi og wc. Sumarhúsið er með hitaveitu sem er mikill kostur.
Nánari Lýsing:Komið er inn í flísalagða forstofu, inn af forstofu tekur við rúmgóð stofa sem tengir saman öll önnur rými eignarinnar, í stofunni er bæði útgengt út á timburverönd og arinn sem gefur stofunni góða viðbót. Þrjú svefnherbergi sem eru öll góð að stærð. Eldhúsið er í opnu rými með stofunni og er með viðarlitaðri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum. Baðherbergið er við forstofuna og er með flísalögðu gólfi, sturtuklefa, viðarlitaðri innréttingu, wc og handklæðaofn.
Að utan: í kringum húsið er mikill gróður og fallegt útsýni, stór timburverönd með heitum pott, geymsluskúr með tengi fyrir þvottavél. Geymsluskúrinn er á tveimur hæðum, í kjallaranum er lagnakjallari sem er með góðu aðgengi.
Gestahús: Við hliðin á eigninni er búið að byggja gestahús sem er skráð 14,9 M², komið er inn í parketlagða stofu með lítilli eldhús innréttingu sem er í opnu rými með stofunni. Inn af stofunni er síðan eitt svefnherbergi með wc sem er einnig parketlagt
Annað- Eignin er með hitaveitu
- Búið er að borga fyrir ljósleiðara inn í hús en eftir að tengja inni
- Varmaskiptir á neysluvatni
Heilt yfir er hér um að ræða spennandi tækifæri og sumarhús með fallegu útsýni og í rólegu umhverfi.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á