Vilborg og Valhöll kynna nýtt á einkasölu
BJÖRT OG FALLEG 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ AÐ LINDARGÖTU 60
SÉRINNGANGUR ER Í ÍBÚÐINA.
ÞVOTTAHÚS ER Á HÆÐINNI.
EIGNIN ER SKRÁÐ 56 FM Þ.A. ER GEYMSLAN 3,6 FM.
HÚSIÐ ER BYGGT ÁRIÐ 2004 OG ER 2 HÆÐIR, KJALLARI OG RIS.
LÓÐIN ER EIGNARLÓÐ.Áhugasamir hafið samband við Vilborgu í síma 891 8660 eða vilborg@valholl.is.Nánari lýsing:Anddyri með flísum á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, uppþvottavél og ísskápur fylgir, flísar á milli skápa og parket á gólfi.
Stofa björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með sturtuklefa, góð innrétting, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla íbúðar er í sameign með inngangi við hliðina á inngang í íbúð.
Þvottahús er í sameign með inngangi við hlið inngang í íbúð. Þá er einnig tengi fyrir þvottavél í baðherbergi íbúðar.
Nánari upplýsingar veitir:
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.8918660 / vilborg@valholl.isEinstaklega falleg íbúð í 101 Reykjavík þar sem öll þjónusta er í göngufæri.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
- Nýtt - Eignin er nýbygging.
- Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
- Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
- Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
- Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.