Vilborg G Hansen lgf og FASTEIGNASALAN BÆR kynna: 4ra herbergja endaraðhús með bílskúr miðsvæðis á Selfossi. Bílskúr er 22.3 fm en íbúðarrými 120.5 fm, samtals eign 142.8 fm. Rafhleðslustöð í bílskúr.
Bókið skoðun hjá Vilborgu G. Hansen, lgf, sími 895 0303 eða á vilborg@fasteignasalan.is HÚS: komið inn í flísalagð forstofu með flísum og skáp, til hægri er forstofuherbergi með parket á gólfi og skápum Hurð er inn í aðalrými. Mjög rúmgott eldhús með fallegri hvítlakkaðri innréttingu með tengi fyrir uppþvottavél og borðstofa. Innaf eldhúsi er þvottahús með flísum og búr og útgengi út að bílskúr. Stofa er rúmgóð og gengið niður í stóra sólstofu sem hægt er að loka á milli og útgengi er frá sólstofu út á pall til suðurs. Pallurinn er skjólgóður og þar er geymslurými og hlið út í gróinn garðinn. Af sér svefnherbergisgangi er gengið inn í mjög rúmgott hjónaherbergi með parket á gólfi, skápum og útgengi út á pall, barnaherbergi með parket á gólfi og skáp. Baðherbergi, flíslagt með innréttingu og sturtu. Flísar á gólfum eru frá Múrbúðinni. Skipt var um járn og klæðningu á þaki sem þurfti (2010), settur gólfhiti og lagnir yfirfarðar (2010), skipt út lagnagrind (2012), skipt um glugga og gler á suðurhlið hússins (2015-2016). Búið er að skipta um hurðir á hjónaherbergi og baðherbergi og stækka hurðargöt.
BÍLSKÚR: bílskúr er með hita, rafmagni og vatni. Vinnurými innst og útgengi þaðan í garðinn þar sem er lítil geymsla. Rafhleðsla er fyrir rafmagnsbíl í bílskúr.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð