Fasteignaval ehf. kynnir fjölbýlishús í 200, Kópavogsbær
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Fasteignaval / Gunnlaugur Hilmarsson kynna: Fallega 4ra herbergja, 78.9m2 íbúð á 1.hæð, á góðum og vinsælum stað við Skólagerði 61, 200 Kópavogur.
Nánari lýsing: Forstofa er með fatahengi og parket á gólfi. Eldhús er rúmgott og með fallegri innréttingu, góðum tækjum, uppþvottavél og þvottavél í innréttingu, parket á gólfi. Stofa er rúmgóð og björt, þaðan er útgengt út á suður svalir. Parket er á gólfum. Svalir eru rúmgóðar, með svalalokun og snúa í suður. Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi. Tvö barnaherbergi eru með fataskáp, parket á gólfum. Baðherbergi er með ljósri innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Gólf og veggir eru flísalagðir.
Rúmgóð geymsla er á jarðhæð, sem er ekki skráð í fm tölu eignar, ásamt hjóla og vagnageymslu.
Sameignin er snyrtileg og falleg. Sér bílsstæði eru fyrir framan húsið.
Íbúðin er mikið endurnýjuð. Nýtt eldhús og öll tæki. Svalalokun á svalir. Nýlegt parket á gólfum.
Húsið er í góðu ástandi. Búið er að skipta um alla glugga (PVC) og gler. Húsið hefur verið sprunguviðgert og málað. Þak var yfirfarið.
Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, viðskiptafræðingur og löggildur fasteignasali, í síma 777 56 56, gunnlaugur@fasteignaval.is , og á skrifstofu í síma 517 26 00 eða á heimasíðu okkar www.fasteignaval.is
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. Kauptilboði.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 06/04/2016 | 23.250.000 kr. | 27.900.000 kr. | 78.9 m2 | 353.612 kr. | Já |
| 13/02/2010 | 17.200.000 kr. | 15.200.000 kr. | 78.9 m2 | 192.648 kr. | Nei |
| 09/08/2007 | 15.300.000 kr. | 21.500.000 kr. | 78.9 m2 | 272.496 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 215,8 | Tilboð | ||
105 | 79,8 | 79,9 | ||
603 | 148 | 83,9 | ||
201 | 132,5 | 106,9 | ||
210 | 129,3 | 126,9 | ||
210 | 88 | 85,9 |