Fjögurra herbergja björt íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi með góðu aðgengi. Húsið var byggt árið 1979. Merkt matseining hjá HMS er 01-0404. Birt stærð eignar er skráð 97,4 fm. Að auki er geymsla í kjallara sem ekki er skráð í fermetratölu.
Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi með glugga, eldhús og rúmgóða stofu/borðstofu. Tvennar svalir. Til suðurs úr hjónaherbergi og vesturs úr stofu. Sérgeymsla og hjóla-, vagnageymsla er í sameign á jarðhæð.
Komið er inn í flísalagða forstofu með rúmgóðum fataskáp. Parketlögð björt stofa með gluggum til suðurs og vesturs. Gengið er út á rúmgóðar vestursvalir úr stofu/borðstofu. Mjög fallegt útsýni. Flísalagt eldhús með eldri innréttingu. Flísar milli efri og neðri skápa. Uppþvottavél og ísskápur geta fylgt með. Opið er á milli eldhúss og stofu/borðstofu við glugga. Parketlagt hjónaherbergi með góðum skáp. Útgengi á suðursvalir. Tvö parketlögð svefnherbergi með lausum skápum sem geta fylgt með. Baðherbergi með baðkari, opnanlegum glugga og flísum á gólfi. Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús með öðrum íbúðum á hæð. Sérgeymsla er í kjallara.
ATH. EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR
Þetta er vel skipulögð og björt fjögurra herbergja íbúð á vinsælum stað í Kópavogi. Göngufæri er í skóla, leikskóla og íþróttahús Digranes. Stutt er í verslanir og á útivistarsvæði.
Kaupendum er bent á að kynna sér ástandsskýrslu, auk annarra fylgiskjala, varðandi framkvæmdaáætlun. Gluggi í hjónaherbergi þarfnast viðgerða og er húsfélag meðvitað um stöðu máls.
ENGIHJALLI 19, 200 KÓPAVOGUR.
Fjögurra herbergja björt íbúð á fjórðu hæð í lyftuhúsi með góðu aðgengi. Húsið var byggt árið 1979. Merkt matseining hjá HMS er 01-0404. Birt stærð eignar er skráð 97,4 fm. Að auki er geymsla í kjallara sem ekki er skráð í fermetratölu.
Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi með glugga, eldhús og rúmgóða stofu/borðstofu. Tvennar svalir. Til suðurs úr hjónaherbergi og vesturs úr stofu. Sérgeymsla og hjóla-, vagnageymsla er í sameign á jarðhæð.
Komið er inn í flísalagða forstofu með rúmgóðum fataskáp. Parketlögð björt stofa með gluggum til suðurs og vesturs. Gengið er út á rúmgóðar vestursvalir úr stofu/borðstofu. Mjög fallegt útsýni. Flísalagt eldhús með eldri innréttingu. Flísar milli efri og neðri skápa. Uppþvottavél og ísskápur geta fylgt með. Opið er á milli eldhúss og stofu/borðstofu við glugga. Parketlagt hjónaherbergi með góðum skáp. Útgengi á suðursvalir. Tvö parketlögð svefnherbergi með lausum skápum sem geta fylgt með. Baðherbergi með baðkari, opnanlegum glugga og flísum á gólfi. Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús með öðrum íbúðum á hæð. Sérgeymsla er í kjallara.
ATH. EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR
Þetta er vel skipulögð og björt fjögurra herbergja íbúð á vinsælum stað í Kópavogi. Göngufæri er í skóla, leikskóla og íþróttahús Digranes. Stutt er í verslanir og á útivistarsvæði.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.