Fasteignaleitin
Skráð 7. okt. 2026

Sogavegur 220

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
183.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
135.000.000 kr.
Fermetraverð
736.096 kr./m2
Brunabótamat
93.100.000 kr.
Byggt 1962
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
20363551
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 / sveinn@aldirfasteignir.is kynna:
Um er aða ræða rúmgóða og vel skipulagða 183.4 fm efri sérhæð og ris með bílskúr á þessum frábæra stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Fjölskylduvænt og reisulegt hús sem hefur fengið gott viðhald, gróinn snyrtilegur suður-garður.
Fjögur góð svefnherbergi, tvö baðherbergi, tvær stofur, mjög rúmgóður bílskúr og nóg af bílastæðum.
ÍBÚÐ ER Í ÚTLEIGU Í DAG EN ER AÐ LOSNA FLJÓTLEGA.

Skráðir fermetrar eignar eru 183.4 fm samkvæmt fasteignaskrá og skiptast í 137.9 fm íbúðarrými og 45.5 fm bílskúr.
Efri hæðin er eitthvað undir súð og er stærri að gólffleti heldur en skráning segir til um ætla má því að nýtanlegir fermetrar eignar séu nær 200 fm í heildina.


Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

Eign skiptist á eftirfarandi hátt:
Aðalhæðin skiptist í forstofu, hol/gang, gestabaðherbergi, stofu, borðstofu, sjónvarpsstofu, eldhús og svefnherbergi.
Rishæðin skiptist í hol/gang, þrjú svefnherbergi, aðal baðherbergi og geymslu.
Í kjallara er sameiginlegt þvottaherbergi og sérgeymsla.
Frístandandi bílskúr er bakvið hús og er komið að honum frá götunni Leynigerði, mjög gott bílaplan er þar fyrir framan fyrir allavega 3 bíla.

Nánari lýsing á eign:
Sérinngangur er á hæðina og þar er komið inní forstofu með fatahengi, úr forstofu er inngengt í kjallara í sameiginlegt þvottaherbergi og hitainntaksrými, eins er sérinngangur utanfrá í kjallara.
Hol/gangur þaðan sem gengið er í önnur rými hæðar. Gestabaðherbergi með vask og er gluggi á baðherbergi.
Rúmgóð og björt stofa sem rennur saman við borðstofu, upprunanleg tvöföld rennihurð með gleri skilur að gang og stofu, gluggar á þrjá vegu í stofu.
Eldhús er rúmgott með gluggum á tvo vegu, glæsilegt útsýni er úr eldhúsi, snyrtileg eikar eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum og er gott skápapláss, gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, rennihurð skilur af eldhús og gang.
Eitt svefnherbergi er á hæðinni með gluggum á tvo vegu.
Steyptur stigi er upp á efri hæð og er stór gluggi í stigarými sem gefur góða birtu inn á gang.
Komið er uppá pall/alrými þaðan sem gengið er í önnur rými efri hæðar.
Rúmgott aðal baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkari, snyrtilegri innréttingu í kringum vask með skápum og skúffum, vegghengt klósett.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi með innbyggðum fataskápum, útgengi á rúmgóðar suður-svalir úr hjónaherbergi.
Lítil geymsla er á efri hæð undir súð. Sameiginlegt þvottaherbergi er í kjallara og er sérinngangur í kjallara utan frá.
Gólfefni: Parket, dúkur, flísar og teppi á gólfum eignar.

Tvöfaldur rúmgóður bílskúr sem er byggður 2011, tvær rafdrifnar hurðar, heitt og kalt vatn, gólfhiti, geymsluloft er yfir hluta af bílskúr, aðkoma að honum er frá Leynigerði.
Sameiginlegt þvottaherbergi er í kjallara og eins er sérinngangur í kjallara utan frá.
Garðurinn er fallegur og í góðri rækt, berjarunnar sem gefa vel af sér.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is

 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skaftahlíð 4
Kjallaraíbúð
Opið hús:11. okt. kl 16:00-16:30
Skoða eignina Skaftahlíð 4
Skaftahlíð 4
105 Reykjavík
60,8 m2
Fjölbýlishús
211
952 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Axlarás 74
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Axlarás 74
Axlarás 74
221 Hafnarfjörður
194,6 m2
Raðhús
423
737 þ.kr./m2
143.500.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 50
Opið hús:13. okt. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Kleppsvegur 50
Kleppsvegur 50
105 Reykjavík
100,9 m2
Fjölbýlishús
413
722 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Stóragerði 16
Skoða eignina Stóragerði 16
Stóragerði 16
108 Reykjavík
111,1 m2
Fjölbýlishús
615
719 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin