Fasteignaleitin
Skráð 16. júlí 2025

Laugavegur 168

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
266 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
121.500.000 kr.
Fermetraverð
456.767 kr./m2
Fasteignamat
113.250.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Garður
Bílastæði
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2529738
Landnúmer
103420
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
07
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Tveir inngangar
*** Bókið skoðun í S: 844-6516 ***
Fasteignasalan TORG Kynnir: Góð 3ja herbergja íbúð á tveimur hæðum, með tvo sér-innganga og verönd inn í sameiginlegan garði, auk bílastæði í bílakjallara. Íbúð merkt:107, sem skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 133fm að stærð á 1. og 2. hæð með sér inngangi. Neðri hæð íbúðar er skráð 65,1fm og efri hæð er skráð 49,2fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu og eitt svefnherbergi á efri hæð auk gestasalerni. Stórt baðherbergi með þvottaherbergi inn af á neðri hæðinni ásamt hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi inn af, auk sér geymslu í sameign merkt: 0052, skráð 18,7fm auk bílastæðis nr B30.  Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Ragnar Guðmundsson, fasteignasali í GSM: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR
Sækja söluyfirlit HÉR

Heklureiturinn. 
Heklureiturinn sem er Laugarvegur 168 – 174 er einn mest spennandi miðborgarreiturinn sem er í uppbyggingu í dag.  Reiturinn liggur vel við öllum samgönguæðum, stutt inn á Sæbraut, Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá er örstutt að ganga í miðbæinn en samt nógu langt frá til þess að verða ekki fyrir truflun þegar miðborgarlífið er í fullri sveiflu.

Úrval íbúða er einstakt frá tveggja herbergja íbúðum upp í stórar þakíbúðir sem og íbúðir á tveimur hæðum og munu henta fyrir nánast allar fjölskyldugerðir. Nokkrar með sér inngangi og/eða inngangi af svalagangi. Allir stigagangar með lyftur.

Í fyrsta áfanga verða 82 íbúðir að Laugarvegi 168 sem eru til afhendingar haustið 2025.
Heildaruppbyggingin mun skila yfir 400 íbúðum alveg við miðborgina og verður umbylting í borgarmyndinni á þessum stað.

Um er að ræða glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Laugarveg þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og  nýjustu Siemens tækjum. Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead kom að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Quarts steinn er á borðum eldhúss og baðherbergis sem sérframleiddur er á Ítalíu frá Santamargherita. Eldhústæki eru frá Siemens. 

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Skipulag:
Deiliskipulagið að reitnum eru fimm byggingar frá Laugavegi 168-174  sem verður byggt í áföngum. Fyrsta húsið sem nú er í byggingu er Laugavegur 168.

Skipulagið tekur mið af því að hámarka  gæði staðsetningarinnar, hvað varðar skjólið frá holtinu, útsýnið sem er í allar áttir og sérstaklega í átt að Esjunni, vestur yfir borgina og austur í fjallahringinn. Einnig til suðurs í átt að Perlunni.

Götumynd verður endurbyggð í Brautarholti, Nóatúni og við Laugaveg. Við Laugaveginn verða þjónustu- og verslunarrými þar sem áætlað er að borgarlínan muni ganga framhjá. Nálægð við þjónustu og samgöngur gefur möguleika á bíllausum lífstíl en í kjallara verða bílastæðahús þar sem hægt er að aka út hvort sem er út á Laugaveginn eða Nóatún

Hönnun:
Að hönnun húsanna á Heklureitnum koma tvær arkitektastofur, Teikna teiknistofa arkitekta og THG arkitektar. Var það gert til þess að auka fjölbreytnina í hönnuninni og sá önnur stofan um innra skipulag á meðan hin einbeitir sér að því að sjá um ytra útlit með því að skapa tilbreytni í uppbroti klæðninganna með litum og efnisvali. Um landslagshönnun sér síðan Lilja Filippusdóttir hjá Lilium teiknistofu.

Áhersla var lögð á að hvert hús hefði sinn karakter og sérkenni en eru síðan bundin saman með sameinandi þáttum í landslagshönnuninni. Til að hámarka birtu stallast húsið niður til suðurs, það ásamt gólfsíðum gluggum í flestum íbúðum eykur birtu innan íbúða.
Myndir tölvugerðar og aðeins til að gefa góða mynd af íbúðum. Sjá nánar skilalýsingu*

Allar nánari upplýsingar, teikningar og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Ragnar Guðmundsson, fasteignasali í GSM: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2529738
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B3
Númer eignar
0
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2025
133 m2
Fasteignanúmer
2529738
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
07
Húsmat
100.700.000 kr.
Lóðarmat
12.550.000 kr.
Fasteignamat samtals
113.250.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 53
Bílastæði
Skoða eignina Holtsvegur 53
Holtsvegur 53
210 Garðabær
136.2 m2
Fjölbýlishús
423
954 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Birkiholt 6
Skoða eignina Birkiholt 6
Birkiholt 6
225 Garðabær
94.9 m2
Fjölbýlishús
312
789 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 52
Skoða eignina Áshamar 52
Áshamar 52
221 Hafnarfjörður
103.8 m2
Fjölbýlishús
514
866 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Álfhólsvegur 125
Álfhólsvegur 125
200 Kópavogur
88.3 m2
Fjölbýlishús
312
792 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin