Fasteignaleitin
Opið hús:11. okt. kl 12:00-12:30
Skráð 9. okt. 2026

Furugrund 66

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
56.8 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
966.549 kr./m2
Brunabótamat
34.750.000 kr.
Byggt 1978
Jarðhæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20608211
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Björt og falleg, 2ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í snyrtilegu og vel viðhöldnu litlu fjölbýli við Furugrund í Kópavogi.  Suð-vestur svalir og sérmerkt bílastæði. Frábær staðsetning í rótgrónu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu og í göngufæri við náttúruparadísina í Fossvogsdal, við íþróttasvæði HK og leik- og grunnskóla.
EIGNIN GETUR VERIÐ AFHENT VIÐ KAUPSAMNING.


Eignin er merkt  01-0101 og skráð 56,8fm skv. Þjóðskrá Íslands.
Eignin samanstendur af forstofu, einu svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Í kjallara í sameign er sameiginleg hjóla-og vagnageymsla, sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla íbúðar.

Nánari lýsing:
Forstofa með skáp, flísar á gólfi. 
Stofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi, útgengt á suð-vestursvalir. 
Eldhús með góðu skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrókur, flísar á gólfi. Ísskápur fylgir með.
Svefnherbergi með fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með nettri innréttingu, baðkar með sturtugleri og opnanlegur gluggi.
Sérgeymsla íbúðar er í kjallara. 
Sameiginleg vagna-og hjólageymsla í kjallara.
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara, tvær þvottavélar og tveir þurrkarar.
Sérmerkt bílastæði.

Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin skv upplýsingum frá húsfélagi:
Þakjárn endurnýjað og klæðning undir sem þurfti
Gluggar og gler endurnýjaðir eftir þörfum, 3 gluggar í þessari íbúð.
Þakkantur endurnýjaður að miklu leyti.
Allar rennur og niðurföll endurnýjuð.
Sameiginlegt loftnetskerfi endurnýjað.
Dyrasímakerfi endurnýjað.
Húsið sprunguviðgert og málað.

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða freyja@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Faxabraut 27
Efsta hæð
Skoða eignina Faxabraut 27
Faxabraut 27
230 Reykjanesbær
78,7 m2
Fjölbýlishús
312
596 þ.kr./m2
46.900.000 kr.
Skoða eignina Álfaborgir 27
Skoða eignina Álfaborgir 27
Álfaborgir 27
112 Reykjavík
78,3 m2
Fjölbýlishús
312
798 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Skoða eignina Lækjasmári 8
Hleðslustöð
Skoða eignina Lækjasmári 8
Lækjasmári 8
201 Kópavogur
97,3 m2
Fjölbýlishús
312
873 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Sambyggð 6
Efsta hæð
Skoða eignina Sambyggð 6
Sambyggð 6
815 Þorlákshöfn
78,4 m2
Fjölbýlishús
413
631 þ.kr./m2
49.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin