-Frábær staðsetning í miðbænum
-Einkastæði í bílakjallara
-Þvottahús innan íbúðar
-Suður svalirEignin er tveggja herbergja á annarri hæð og skráð 71,3 fm samkvæmt HMS.
Húsið er byggt árið 2019 og er íbúðin stílhrein og nútímaleg.
Vinnubrögð eru vönduð, lofthæð góð og innbyggð lýsing.
Steinborðplata er á eldhúsinnréttingu og baðherbergi.
Íbúðin er parketlögð í alrými og í svefnherbergi en flísalögð í forstofu og á baðherbergi.
Eldhúsinnrétting er ljós með bakaraofni, spanhelluborði og innfelldri uppþvottavél.
Fyrir ofan helluborð er upphengdur háfur með lýsingu.
Sameiginlegur garður er snyrtilegur og með litlu leiksvæði.
Myndavéladyrasími er fyrir anddyri.
Svalir eru hlýlegar og timburklæddar og restin af húsinu er með álklæðningu.
Nánari upplýsingar veita:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.isNánari lýsing á eign:Sérinngangur af svalagangi.Gengið er inn í
forstofu sem er flísalögð og með góðum fataskápum.
Eldhús er opið til borðstofu og stofu. Stílhrein og vönduð hvít innrétting með steinborðplötu og innfelldri uppþvottavél. Eyja með spanhelluborði og háf yfir.
Stofan er björt og opin með útgengi út á suður svalir. Parket á gólfi.
Svefnherbergi er parketlagt og með góðu skápaplássi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturta flísalögð og afmörkuð með gleri. Ljós innrétting með steinborðplötu og geymsluskúffum ásamt vaski. Speglaskápur er fyrir ofan vaskinnréttingu. Innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Handklæðaofn og upphengt salerni.
Sérgeymsla er í sameign og er 12,3 fm. Geymslugangur er með lökkuðum gólfum.
Sameign er afar snyrtileg með lyftu sem gengur niður í bílakjallara.
Vagna- og hjólageymsla er einnig í sameign.
Frábær staðsetning í miðborg Reykjavíkur þar sem stutt er í verslanir, kaffihús, veitingastaði, menningu og alla helstu þjónustu.
Íbúðin hentar vel fyrir þá sem vilja lifa í hjarta borgarinnar í nútímalegri og vel skipulagðri eign.
Sæbraut í göngufæri sem er vinsæl göngu-, hlaupa- og hjólaleið með frábæru útsýni yfir sjóinn.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.