Valhöll fasteignasala og Sölvi Sævarsson lgf, kynna: Glæsilegt nýtt parhús á tveimur hæðum með 4 svefnherbergjum í rólegri götu að Úugötu 72-74 í Helgafellslandi í Mosfellsbæ. Einstakt útsýni er úr húsunum til fjalla, Helgafellið, Bláfjöllin, Úlfarsfellið og út á Faxaflóann.
Húsin eru mjög vel skipulögð. Húsin snúa til suðurs með frágenginni lóð og eru tvö bílastæði á lóð, auk bílskúrs. Húsin eru hönnuð og byggð fyrir íslenskar aðstæður og er stutt í fallega ósnortna náttúru. Arkitekt húsana er Sigurður Hallgrímsson.
Úugata 72:
Eignin er í heild skráð 209,0 m² skv. Hms, Íbúðin er skráð 181,1 m² og bílskúr 27,9 m².
Húsið er á byggingarstigi 3, tilbúið til innréttingar. Húsin skilast með lóð eins og þau eru í dag.
Fasteignamat ársins 2027 er 120.600.000 kr.
Allar nánari uppl. veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 / solvi@valholl.is
Almennt Úugata 72-74:
Húsin eru staðsteypt 209 fermetra parhús á tveimur hæðum og er parhúsið vel staðsett, innarlega í Helgafellslandinu í Mosfellbæ. Hverfið er nánast fullbyggt hverfi þar sem allir innviðir eru tilbúnir og rótgrónir, svo sem skólar, leikskólar, samgöngur o.s.frv. Parhúsið stendur í suðurhlíðum Mosfellsbæjar, sem gerir það að verkum að sól og birta umleikur húsið og umhverfi þess allan daginn. Stórkostlegt útsýni á efri hæð hússins og ekkert sem skyggir á sýn yfir Helgafellið, Bláfjöllin, Úlfarsfellið og út á Faxaflóann.
Hönnuður er Sigurður Hallgrímsson arkitekt. Við hönnun hússins var hugsað til þess að eignin myndi uppfylla nútímaþarfir kaupenda, hvað varðar innra skipulag, frágang á lóð við afhendingu og lágmarksviðhald til framtíðar fyrir kaupendur.
Nánari lýsing og skipuag húsana:
Gengið er inn í forstofu af bílaplani á neðri hæð hússins og einnig er innangengt úr bílskúr inn í forstofu.
Á neðri hæðinni eru þrjú rúmgóð barnaherbergi ásamt baðherbergi og þvottahúsi. Á neðri hæðinni er einnig gott aðgengi út á tvo sólpalla. Annar sólpallurinn er baka til við húsið en hinn sólpallurinn snýr í suður.
Á efri hæð hússins er hjónaherbergi með innangengu baðherbergi og fataherbergi, rúmgóð stofa með stórum gluggum og miklu útsýni, eldhús og sjónvarpshol. Hægt er að breyta sjónvarpsholi í fjórða barnaherbergið án mikillar fyrirhafnar sé þess þörf (sjá teikningu). Á efri hæðinni er gengið út á svalir sem snúa til suðurs.
Skilalýsing og upplýsingar frá byggingarstjóra húsana:
Uppbygging húsanna Þegar húsin voru hönnuð var ákveðið að byggja þau með þeim aðferðum sem reynst hafa vel á Íslandi og standast íslenska veðráttu. Eingöngu er notast við byggingarefni og byggingaraðferðir sem byggingariðnaðurinn hefur langa og góða reynslu af á Íslandi. Það má því segja að grunnuppbyggingin húsanna sé með gamla laginu en að sjálfsögðu er notast við þær nýjungar í byggingariðnaðinum sem reynst hafa vel við íslenskar aðstæður sl. árin.
Húsin eru staðsteypt og pússuð og einangruð að innan. Flestir innveggir eru steyptir en aðrir veggir eru léttir gipsveggir. Að utan eru húsin steinuð með dökkum steinsalla en innfellingar eru sléttpússaðar og málaðar. Vatnsbretti eru undir öllum gluggum sem gerir það að verkum að regnvatn sem lendir á rúðum rennur ekki eftir veggjum húsanna á leið sinni til jarðar. Þakkantur er úr 2mm lituðu áli og niðurföll eru úr heildregnum álrörum sem búið er að polýhúða í lit. Búið er að sílanbera allt húsið að utan sem tryggir góða vatnsvörn á yfirborði hússins næstu 15 árin. Gluggar eru ál/tré gluggar sem settir voru í eftir að uppsteypu lauk og var gengið mjög vandlega frá öllum þéttingum að innan sem utan. Þakið er svokallað viðsnúið þak. Uppbyggingin er á þann veg að vatnshallinn er myndaður í þakplötunni en þar á eftir eru brædd tvö lög af asfaltpappa, svo kemur 200mm roofmade einangrun, goritex dúkur og að lokum er farg lagt yfir þakið til þess að halda einangruninni niðri. Þessi þakuppbygging á „flötum þökum“er sú aðferð sem hefur gefið bestu reynsluna við íslenskar aðstæður. Þetta er mun vandaðri og dýrari frágangur en þök sem eru klædd með dúk (dúkþök). Loftræsting er í húsinu sem á tryggja loftskipti. Hitakefið í húsinu er gólfhiti á báðum hæðum. Lóðin er fullfrágengin með hellulögðum bílastæðum, þreföldu sorptunnuskýli, steyptum og léttum skjólveggjum og harðviðarsólpöllum.
Lóðin er þökulögð en að norðanverðu er brotinn steinmulningur sem þekur yfirborð lóðar.
Kostir Úugötu 72-74 Húsin eru viðhaldslítil og rúma stórar fjölskyldur. Húsin eru mjög vel skipulögð, björt og með góðu útsýni. Húsin snúa til suðurs með fullfrágenginni lóð og eru tvö bílastæði á lóð, auk bílskúrs. Húsin eru hönnuð og byggð fyrir íslenskar aðstæður og er stutt í fallega ósnortna náttúru. Þetta er kjörumhverfi fyrir kaupendur sem vilja öruggt og fallegt umhverfi fyrir fjölskyldu sína og allir innviðir eru þegar til staðar. Allir iðnaðarmenn sem komu að uppbyggingu hosanna eru menntaðir iðnaðarmenn eða iðnmeistarar og hafa að minnsta kosti 25 ára starfsreynslu við húsbyggingar á Íslandi. Byggingameistarinn er vandvirkur verktaki með yfir 35 ára reynslu af húsbyggingum á Íslandi og sá hann um flesta verkþættina sjálfur og fylgdi verkinu eftir frá upphafi til enda.
Skilalýsing Húsin skilast á byggingarstigi þrjú sem er fullgerð bygging að utan og tilbúin til innréttinga. Til viðbótar er búið að draga víra í allar raflagnir innanhúss ásamt því að lóð er fullfrágengin.
Byggingarsjóri húsana er Sveinbjörn Sigurðsson, húsasmíðameistari.
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 / solvi@valholl.is
– eða skrifstofa / s.588-4477 / valholl@valholl.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.