Fasteignaleitin
Skráð 27. ágúst 2026

Blöndubakki 1 - 202

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
108 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
693.519 kr./m2
Fasteignamat
66.200.000 kr.
Brunabótamat
57.150.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1972
2. hæð af 4
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2047361
Landnúmer
111845
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Skipt um gler 2023
Þak
Endurnýjað að hluta 2024 - Sjá ástandsyfirlýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Blöndubakki 1 – íbúð 202, 109 Reykjavík.

Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 5 herbergja íbúð á góðum stað við Blöndubakka 1 í Reykjavík. Íbúðin er skráð 108,0 fm og býður upp á þrjú svefnherbergi, bjarta stofu, eldhús, baðherbergi og góða nýtingu rýma. Baðherbergi var endurnýjað fyrir um ári síðan, gólfefni hafa verið endurnýjuð, innihurðum skipt út og fataskápar eru í herbergjum.
Hér er um að ræða snyrtilega og fjölskylduvæna íbúð í grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og útivist.

Skráð stærð108,0 fm.

Helstu atriði
  • 5 herbergja íbúð
  • Þrjú svefnherbergi og björt stofa.
  • Baðherbergi endurnýjað fyrir um ári síðan.
  • Nýlegt parket, nýlegar innihurðir og PAX fataskápar í herbergjum.

Nánari upplýsingar veita:
Ómar Hjaltason astmf. S:778-9090 eða omar@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is



Nánari lýsing
Við Blöndubakka 1 er að finna þessa vel skipulögðu og mikið endurnýjuðu íbúð sem hentar vel fjölskyldum og þeim sem vilja rúmgóða íbúð í grónu og fjölskylduvænu hverfi. Íbúðin er skráð 108,0 fm og hefur verið endurbætt á smekklegan og praktískan hátt á síðustu árum.
Komið er inn í íbúðina og þaðan tekur við gott skipulag með björtu stofurými, eldhúsi, svefnherbergjum og baðherbergi. Stofan er björt og rúmgóð og nýtist vel sem aðal samverurými íbúðarinnar. Stofa, eldhús og hol voru máluð fyrir um ári síðan sem gefur íbúðinni snyrtilegt og ferskt yfirbragð.
Eldhúsið er eldra að grunni en hefur verið uppfært. Eldhúsframhliðar voru sprautulakkaðar og borðplötur endurnýjaðar fyrir um fjórum árum, sem gefur rýminu snyrtilegt og hlýlegt útlit. Eldhúsið nýtist vel til daglegra nota og tengist rýmum íbúðarinnar á þægilegan hátt.
Svefnherbergin eru þrjú  og í herbergjum eru PAX fataskápar sem veita gott skápapláss. Gólfefni íbúðarinnar voru endurnýjuð fyrir um þremur árum og innihurðir fyrir um fjórum árum, sem setur snyrtilegan svip á íbúðina.
Baðherbergið var endurnýjað fyrir um ári síðan og er með walk-in sturtu, upphengdu salerni, nýrri innréttingu, vaski og tækjum. Ný innrétting er einnig í þvottaaðstöðu, sem eykur notagildi íbúðarinnar og gerir daglega notkun þægilegri.
Geymsla fylgir íbúðinni ásamt sameiginlegri hjólageymslu. Íbúðin er skráð 5 herbergja og fimmta herbergið er í dag geymsla innan af íbúð sem áður var gestasnyrting og tengi eru til staðar til að breyta því aftur.

Staðsetningin er góð í grónu hverfi í Breiðholti þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu, útivistarsvæði og almenningssamgöngur. Hér er um að ræða rúmgóða og mikið endurnýjaða íbúð með góðu skipulagi og fjölskylduvænum kostum.


www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kambasel 29
Bílskúr
Efsta hæð
Skoða eignina Kambasel 29
Kambasel 29
109 Reykjavík
126.8 m2
Fjölbýlishús
413
670 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 206
Bílastæði
Opið hús:29. ágúst kl 11:30-12:00
Jöfursbás 3B íb 206
112 Reykjavík
99.6 m2
Fjölbýlishús
413
963 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 2 - íbúð 305
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:27. ágúst kl 18:00-18:30
Grásteinsmýri 2 - íbúð 305
225 Garðabær
120.4 m2
Fjölbýlishús
413
880 þ.kr./m2
106.000.000 kr.
Skoða eignina Grásteinsmýri 2 - íbúð 209
Bílastæði
Opið hús:27. ágúst kl 18:00-18:30
Grásteinsmýri 2 - íbúð 209
225 Garðabær
122.4 m2
Fjölbýlishús
312
903 þ.kr./m2
110.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin