Fasteignaleitin
Skráð 13. mars 2026

Básbryggja 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
152.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
653.796 kr./m2
Fasteignamat
92.500.000 kr.
Brunabótamat
75.880.000 kr.
Mynd af Albert Bjarni Úlfarsson
Albert Bjarni Úlfarsson
löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2252202
Landnúmer
180375
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Í lagi að sögn seljanda.
Raflagnir
Í lagi að sögn seljanda.
Frárennslislagnir
Í lagi að sögn seljanda.
Gluggar / Gler
Tvöfalt í lagi að sögn seljanda.
Þak
Í lagi að sögn seljanda.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita, sameiginlegur hiti
Inngangur
Sameiginlegur
Albert Bjarni og LIND fasteignasala, kynna afar fallega og bjarta 4-5 herbergja útsýnis endaíbúð á tveimur hæðum með bílskúr á þessum skemmtilega stað í Grafarvoginum.

Íbúðin skiptist í: neðri hæð með forstofu, stofa, eldhús, tvö svefnherbergi og þvottahús. Á efri hæð er opið rými og svefnherbergi. Á jarðhæð við hlið inngangs er bílskúr, geymsla og sameiginlegar hjóla og vagna geymslur.

Allar upplýsingar um eignina veitir Albert Bjarni fasteignasali í síma 8210626 eða albert@fastlind.is

Nánari lýsing: komið er inn í fallega forstofu með fataskápum. Við forstofuna er svefnherbergi með fataskápum. Falleg samliggjandi stofa og borðstofa með útgangi á svalir til suðurs. Úr stofu er myndarlegur steinhringstigi á efri hæð. Eldhúsið er fallegt með innréttingu og góðu skápa og borðplássi. Svefnherbergi með fataskáp og fallegu útsýni í skrúðgarð og Esjuna. Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, falleg innrétting með uppsettum speglaskáp, handklæðaofni, sturtu og útloftunartúðu. Þvottahús með tengi fyrir þvottavél/þurrkara, handklæðaofn, vaskur og skápur. Á efri hæð er opið rými sem er í dag nýtt sem sjónvarpsstofa og vinnuaðstaða. Rúmgott svefnherbergi með útgangi á svalir til norðurs, það er afar fallegt útsýni að Esju og í skrúðgarðinn. Á gólfum eignarinnar er parket nema á baði og þvottahúsi þar sem eru flísar. Í sameign er 6,8 fm sér geymsla og tvær sameiginlegar geymslur. 24,3 fm bílskúr sem er við innganginn, flísalagður með nýlegri hurð og sjálfvirkum opnara. Það er heitt og kalt vatn, vaskur í innréttingu í bílskúrnum. Heildarstærð er alls 152,8fm, þar af er íbúðin 121,7fm en er stærri af gólffleti því hluti er undir súð, bílskúr 24,3fm og geymsla 6,8fm.

Afar falleg sameiginleg skjólgóðri lóð að evrópskri fyrirmynd. Afar gott aðgengi með næg bílastæði. Í hverfinu eru margir leikvellir og ærslabelgur skammt frá eigninni sem er vinsælt leiksvæði krakka í hverfinu. Stutt er í útivistarsvæði í Grafarvoginn, s.s. Geirsnef, Hamrana, Voginn og alla helstu þjónustu s.s. skóla og leikskóla, verslanir, veitingahús, líkamsræktarstöðvar, strætóstöðvar o.fl. 

Allar upplýsingar um eignina veitir Albert Bjarni fasteignasali í síma 8210626 eða albert@fastlind.is

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 10 samstarfsaðilum: 
Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og SÝN.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignsala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/03/202053.650.000 kr.57.500.000 kr.152.8 m2376.308 kr.
02/02/201740.450.000 kr.47.600.000 kr.152.8 m2311.518 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2000
24.3 m2
Fasteignanúmer
2252202
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
01
Númer eignar
06
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.430.000 kr.

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langimói 7 íbúð 104
Langimói 7 íbúð 104
603 Akureyri
107.5 m2
Fjölbýlishús
413
828 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Skoða eignina Langimói 7 íbúð 101
Langimói 7 íbúð 101
603 Akureyri
96.4 m2
Fjölbýlishús
312
835 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Kristjánshagi 6 íbúð 304
Kristjánshagi 6 íbúð 304
600 Akureyri
94.7 m2
Fjölbýlishús
413
759 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Víkurmói 4 - Íbúð 301
Víkurmói 4 - Íbúð 301
800 Selfoss
98.9 m2
Fjölbýlishús
413
656 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin