Fasteignaleitin
Opið hús:29. ágúst kl 14:00-15:00
Skráð 27. ágúst 2026

Grásteinsmýri 3 (101)

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-225
106.5 m2
4 Herb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
37.350.000 kr.
Mynd af Þórunn Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir
Lögg. fasteignasali
Jarðhæð
Pallur
Fasteignanúmer
2539905
Landnúmer
232282
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Háborg fasteignasala kynnir Grásteinsmýri 3 í Garðabæ
 fjölbýli með lyftu. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með ál- og bambusklæðningu. Í boði eru góðar 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Útsýni er úr flestum íbúðum og timburverönd fylgir íbúðum á 1. hæð. Íbúðirnar afhendast án megingólfefna, en baðherbergi eru flísalögð að hluta. Næg bílastæði eru á lóð. Áætluð afhending íbúða er í nóvember/desember 2026.

Nánari upplýsingar veita Jórunn Skúladóttir lgf : 845-8958 eða jorunn@haborg.is, Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 eða thorunn@haborg.is og Tinna Bryde, lgf, s: 660-5532 eða tinna@haborg.is

Nánari lýsing á íbúð 101 –  Björt 4ra herbergja endaíbúð með  sérinngangi gluggum á 3 vegu.
Íbúðin er 106,5 fm að stærð þar af geymsla 7,8 fm.  Forstofa með góðu skápaplássi . Hjónaherbergi er rúmgott og bjart, með góðum fataskápum. Baðherbergi er með glugga, góðri snyrtiaðstöðu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Alrými er mjög rúmgott og bjart, með gólfsíðum gluggum og  opnu eldhúsi með góðri eyju. Úr alrými/stofu er útgengt á sólríkan pall til  suðurs.

Um er að ræða nýjar, bjartar og vandaðar íbúðir með góðri lofthæð, þar sem náttúra, ró og nútímaleg hönnun mætast. Sjá heimasíðu verkefnisins http://hasteinsmyri.is

Innréttingar og búnaður
AXIS innréttingar í litnum Cashmere Grey. AEG innbyggð heimilistæki, ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakarofn. Baðherbergi eru flísalögð að hluta. Grohe blöndunartæki eða sambærileg. Hurðir, lamir og hurðabúnaður frá Agli Árnasyni.
Sér geymsla í kjallara og sameiginleg opin reiðhjóla- og vagnageymsla er í inngarði á milli húsa.

Staðsetning og nærumhverfi
Frábær staðsetning þar sem skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttahús eru í örstuutu göngufæri. Ekkert skutl og engar götur sem þarf að fara yfir. Umhverfið er rólegt og fallegt og aðstaða fyrir fjölskyldufólk er framúrskarandi. Þá eru frábær útivistarsvæði við strandlengjuna. Hestamannafélagið Sóti og fallegar reiðleiðir eru einnig á svæðinu. Aðeins 4 mínútna akstur er frá ljósunum við Actavis.

Athugasemdir
Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það verður lagt á.
Athugið að myndir í auglýsingum eru settar fram til viðmiðunar. Á þeim kunna að koma fyrir einstök atriði, búnaður eða frágangur sem fellur ekki undir lokaútgáfu eða skilalýsingu fasteignarinnar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. er kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar fer samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu er samkvæmt gjaldskrá.

Nánari upplýsingar veitir  Þórunn Páldsóttir lgf s773-6000  og thorunn@haborg.is, Tinna Bryde, lgf, s: 660-5532 eða tinna@haborg.is og Alexandra Eik Októsdóttir, sölumaður í s:897-8277 eða alexandra@haborg.is
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Herjólfsgata 34
Efsta hæð
Skoða eignina Herjólfsgata 34
Herjólfsgata 34
220 Hafnarfjörður
92.6 m2
Fjölbýlishús
312
1295 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 10 - íbúð 306
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:29. ágúst kl 13:00-13:30
Eskiás 10 - íbúð 306
210 Garðabær
87.2 m2
Fjölbýlishús
32
997 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
116.4 m2
Fjölbýlishús
413
1022 þ.kr./m2
119.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 7
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 7
Bolholt 7
105 Reykjavík
112.6 m2
Fjölbýlishús
413
1057 þ.kr./m2
119.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin