Móeiður Svala lögg. fasteignasali og Miklaborg kynna:
Nýtt og stórglæsilegt 133m2 sumarhús / heilsárshús með frábæru útsýni og gistileyfi 2 (airbnb/booking 365 daga á ári) á eignarlóð, við Giljatungu 29, í landi Ásgarðs í Grímsnes-og Grafningshreppi.
Um er að ræða afar vel hannað hús með mikilli lofhæð, sérsmíðuðum innréttingum og efnisvali í hæsta gæðaflokki, staðsett á rólegum og eftirsóttum stað í gróðursælu umhverfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala Lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is
Lokaúttekt hefur farið fram.
Húsið er mjög vandað og stendur á eignarlandi í kjarrivöxnu gili þar sem lækur rennur niður, gistináttaleyfi 2 er samþykkt sem þýðir að heimilt er að leigja húsið út í skammtímaleigu allt árið í kring. Svæðið er lokað með rafmagnshliði og árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er um 70.000kr á ári. Heimilt er að byggja allt að 40m2 gestahús á lóðinni til viðbótar.
Í húsinu eru sérsmíðaðar spónlagðar innréttingar. Húsið er álklætt að utan með stuðlabergsklæðningu og með ál/tré gluggum. 120m2 Sólpallur klæddur með fallegu og endingargóðu pallaefni frá Lunawood í Finnlandi, sem hentar einstaklega vel fyrir krefjandi íslenskar aðstæður, skjólgirðing að hluta.
Gert er ráð fyrir heitum potti og tengingar eru fyrir hendi. Gólfplata er steypt og með hitalögn. Hitatúpa er fyrir gólfhitann og varmaskiptir fyrir neysluvatn. Að innan eru útveggir klæddir með sérskornri 12mm eikarklæðningu úr bjálkum í bland við microsement. Hurðir og innréttingar eru úr reyktri eyk. Loft eru með innfelldum ljósum. Lóð er að mestu frágengin en að öðruleiti skilast lóðin eins og hún er af náttúrunar hendi.
Um Lunawood: pallaefni frá Finnlandi. Efnið er hitameðhöndlað við 212°C, án nokkurrar efna- eða íblöndunar, sem gerir það að fullkomnu vali fyrir umhverfisvænar byggingarlausnir. Svansvottun tryggir sjálfbæra og vistvæna framleiðslu. Klæðningin hentar einstaklega vel fyrir krefjandi íslenskar aðstæður.
Allar nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala Lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
805 | 144.2 | 112 | ||
805 | 124.4 | 114,7 | ||
805 | 133 | 114,9 | ||
805 | 134.5 | 120 | ||
805 | 133 | 114,9 |