-Tveir sérinngangar
-Jarðhæð
-Einkalóð með veröndFjögurra herbergja íbúð á neðri hæð í fallegu tvíbýli, skráð 113,5 fm samkvæmt HMS.
Hún er mikið endurnýjuð og hefur fengið gott viðhald að innan sem utan.
-Baðherbergi tekið í gegn 2023.
-Eldhús einnig tekið í gegn 2023.
-Nýlegar ofnalagnir og neysluvatnslagnir.
-Nýjar raflagnir dregnar í bað og eldhús.
-Skipt um þak af fyrri eiganda.
-Álagshliðar klæddar.
-Frárennsli/skólp endurnýjað að fullu 2023.
Djúp innkeyrsla með pláss fyrir tvo til þrjá bíla.
Hleðslustöð fylgir.
Skóli, leikskóli og leikvöllur í göngufæri.
Höfnin og hoppland í næsta nágrenni og Langisandur skammt undan.
Kózý eign til eigu eða útleigu sem vert er að gefa góðan gaum.
* Bókið skoðun *Frekari upplýsingar veitir:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.isNánari lýsing:
Inn um
sérinngang er gengið inn í
forstofu sem er flísalögð með fatahengi bak við hurð og geymslu á hægri hönd.
Annar sérinngangur er inn um
þvottahús sem nýlega hefur verið tekið í gegn.
Inn af forstofu er bjart og parketlagt alrými.
Eldhús er á vinstri hönd, gert upp árið 2023. Vintage innrétting með góðu skápaplássi og viðarborðplötu. Helluborð, uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.
Stofan er björt og tvískipt og rúmar vel borðstofu og sjónvarpsrými með útsýni út í garðinn.
Baðherbergi var einnig gert upp árið 2023. Flísalagt á gólfi og vatnsálagsrými inn í sturtu, sem er walk-in. Útbúið hvítri vaskinnréttingu með skúffum, baklýstum spegli, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Gangur er að svefnherbergisálmu með góðu veggplássi.
Hjónaherbergi er bjart, parketlagt og með loftháum fataskáp með speglahurðum. Gluggi út að verönd.
Barnaherbergi er bjart og parketlagt.
Aukaherbergi er einnig inn af gangi, notast sem skrifstofa/geymsla sem stendur en er með gluggum sem snúa út að bílastæði og gæti vel notast sem barnaherbergi.
Sameiginleg geymsla með sérinngangi með glugga út að bílastæði.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.