Eignamiðlun kynnir:
Einstaklega glæsilegt og uppgert einbýlishús á þremur hæðum á einum besta stað í hjarta Akureyrar. Rut Káradóttir innanhússarkitekt sá um hönnun á breytingum og hefur eignin öll verið gerð upp á glæsilegan máta á síðustu árum.Eignin er á þremur hæðum sem skiptist í:Jarðhæð: Svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, baðherbergi, þvottahús og bakinngangur.
Miðhæð: Anddyri, stórt og opið rými með eldhúsi, borðstofu og stofu - Gengið er út á sólpall úr eldhúsi.
Rishæð: Tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Jarðhæð:Svefnherbergi: Parket á gólfi.
Sjónvarpsherbergi: Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og á veggjum kringum sturtu. Hvít innrétting með marmara borplötu. Stór og rúmgóður sturtuklefi og vegghengt salerni.
Þvottahús: Hvít innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Í þvottahúsi er einnig bakinngangur í húsið.
Miðhæð: Forstofa: Flísar á gólfi og opið fatahengi. Fallegt opið rými með parketi á gólfi. Dökk eldhúsinnrétting og frístandandi eyjar. Stór gaseldvél er í innréttingu. Út frá eldhúsi er gengið útá suður-verönd. Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi og arinn.
Rishæð: Baðherbergi: Flísar á gólfi og kringum baðkar. Dökk innrétting með stein á borði. Svefnherbergi: Parketi á gólfi og hillur. Svefnherbergi: Parket á gólfi.
- Glæsileg eign í göngufæri við sundlaug Akureyrar, miðbæinn og alla helstu þjónustu.
- Búið er að endurnýja þak, glugga, útihurðar, lagnir, rafmagn og allt að innan.
- Hellulagt bílaplan með lýsingu.
- 14 fm geymslu/garðskúr er á lóð.
- Byggingarréttur á 60 fm stækkun við húsið.
Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur Ingi í síma 864-5464 eða með tölvupósti á netfangið gudlaugur@eignamidlun.is***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook