Fasteignaleitin
Opið hús:07. júní kl 13:00-14:00
Skráð 4. júní 2026

Eirhöfði 7B íb.602

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
100.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
97.900.000 kr.
Fermetraverð
973.161 kr./m2
Fasteignamat
84.650.000 kr.
Brunabótamat
68.220.000 kr.
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2534559
Landnúmer
233296
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
06
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna glæsilegar nýbyggingar við Eirhöfða 7 á Ártúnshöfða – einstakt tækifæri til að eignast heimili í einu metnaðarfyllsta uppbyggingarsvæði Reykjavíkur.

Ártúnshöfði stendur á tímamótum. Þar er að rísa nýr og spennandi borgarhluti þar sem nútímaleg byggð, fallegt borgarumhverfi og framúrskarandi samgöngur mynda grunn að eftirsóttu framtíðarhverfi.
Eirhöfði 7 er hluti af þessari umbreytingu og býður upp á fjölbreytt úrval vandaðra íbúða þar sem hönnun, gæði og staðsetning fara saman.  Heimasíða verkefnisins smella hér!
Við Eirhöfða 7 býðst kaupendum að nýta sér UMBRA20 fjármögnunarleiðina, sem getur auðveldað leiðina að eigin húsnæði með aðeins 10% útborgun. Nánari upplýsingar má finna á UMBRA20

Íbúð 0602 er glæsileg og einstaklega vel skipulögð 3 herbergja íbúð á 6. hæð, samtals 100,6 fm að stærð, þar af er íbúðin 84,9 fm og sérgeymsla 15,7 fm.
Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, anddyri, gang og bjart alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu ásamt rúmgóðri sérgeymslu.
Alrými íbúðarinnar er opið og einstaklega vel nýtt þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda samfellda heild. Stórir gluggar tryggja góða birtu og skapa fallega tengingu við austur svalir sem bjóða upp á notalegt útirými.
Svefnherbergin eru tvö talsins. Hjónaherbergið er rúmgott, 15 fm að stærð, með góðu skápaplássi. Auk þess er 7,9 fm herbergi sem nýtist vel sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuaðstaða.
Baðherbergið er 4,2 fm og er flísalagt með vönduðum tækjum og innréttingum. Sér þvottahús innan íbúðar eykur þægindi í daglegu lífi. Anddyri og gangar eru rúmgóðir með góðu skápaplássi sem stuðlar að hagkvæmu skipulagi og snyrtilegu heimili.
Innréttingar eru í Kasmír gráu litaþema frá Voké-III. Quartz borðplötur, Miele heimilistæki og GROHE blöndunartæki undirstrika þau gæði sem einkenna íbúðirnar við Eirhöfða 7.
Íbúð 0602 er sérlega aðlaðandi kostur fyrir þá sem leita að vandaðri og stílhreinni íbúð með stóru svefnherbergi, góðu skipulagi og fallegum austursvölum á eftirsóttum stað í nýju og spennandi hverfi á Ártúnshöfða.

Húsin standa á Hamrinum, einum hæsta og glæsilegasta stað Ártúnshöfða, með stórbrotnu útsýni yfir Reykjavík, Elliðaárvog, Esjuna og nærliggjandi náttúru. Hér njóta íbúar bæði nálægðar við borgarlífið og einstakrar tengingar við útivistarsvæði Elliðaárdals, strandstíga og fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir.
Við hönnun verkefnisins hefur verið lögð sérstök áhersla á nútímalegan arkitektúr, vandaðan frágang og vel skipulagðar íbúðir sem henta jafnt einstaklingum, pörum og fjölskyldum. Sameiginleg svæði eru hönnuð með þægindi og samfélag í huga og undir húsunum er bílakjallari með góðu aðgengi að íbúðum.

Íbúðirnar einkennast af björtu og opnu skipulagi, stórum gluggaflötum og vönduðum efnisvali. Sérsmíðaðar innréttingar, gæða heimilistæki og nútímalegar lausnir.
Á næstu árum mun Ártúnshöfði þróast í eftirsótt íbúðasvæði með verslun, þjónustu, veitingastöðum, almenningssamgöngum og fjölbreyttu mannlífi í göngufæri. Hér gefst einstakt tækifæri til að kaupa í framtíðarsvæði Reykjavíkur á meðan uppbyggingin er rétt að hefjast.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
Fasteignanúmer
2534559
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B
Númer eignar
14
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.920.000 kr.
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Suðurhvammur 5
Bílskúr
Opið hús:08. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Suðurhvammur 5
Suðurhvammur 5
220 Hafnarfjörður
133.5 m2
Fjölbýlishús
413
545 þ.kr./m2
72.800.000 kr.
Skoða eignina Þorrasalir 13
Bílastæði
Opið hús:09. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Þorrasalir 13
Þorrasalir 13
201 Kópavogur
102.3 m2
Fjölbýlishús
412
875 þ.kr./m2
89.500.000 kr.
Skoða eignina Þjóðbraut 5
Bílastæði
Skoða eignina Þjóðbraut 5
Þjóðbraut 5
300 Akranes
102.8 m2
Fjölbýlishús
413
764 þ.kr./m2
78.500.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3C íb 208 - HMS HLUTDLÁN
Jöfursbás 3C íb 208 - HMS HLUTDLÁN
112 Reykjavík
55.1 m2
Fjölbýlishús
211
1044 þ.kr./m2
57.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin