Talsvert endurnýjað 123,6 fm enda raðhús á einni hæð ásamt c.a. 12,5 fm garðskúr sem stendur á 454 fm eignarlóð við Vesturtún 28, 225 Garðabæ.
Allir skráðir fermetrar eru innan íbúðar skv. HMS.
Nánari lýsing: Anddyri með skápum. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með skápum. Eldhús, stofa og borðstofa í rúmgóðu alrými með útg. á verönd. Eldhús með góðu skápaplássi, eyju m/spanhelluborði og viftu yfir, ofni í vinnuhæð, innbyggðri uppþvottavél og acrýlstein borðplötu. Baðherbergi með upphengdu salerni, speglaskápi, handklæðaofni og baðkari. Þvottahús með góðu skápaplássi, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð ásamt ræstivaski, handklæðaofni og 90x90 sturtuklefa.
Vel hirtur, rótgróin og afgirtur garður með palli og góðum grasfleti fylgir húsinu. Búið er að setja upp veglegan c.a. 12,5 fm einangraðan og klæddan garðskúr í garðinn með rafmagnsofnum.
Rúmgott bílaplan með snjóbræðslu að mestum hluta.
Húsið er einstaklega vel staðsett á Álftanesi, Garðabæ, þar sem leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttasvæði o.fl. má finna í göngufæri og þar sem mikið næði og litla umferð er að finna.
Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin en skv. seljanda hafa eftirfarandi framkvæmdir átt sér stað:2018:Þak og þakrennur endurnýjað.
Gólfefni endurnýjað og fræst fyrir gólfhita.
Allar vatnslagnir í veggjum endurnýjaðar.
Bílskúr breytt í herbergi og þvottahús, nýjar teikningar samþykktar af byggingafulltrúa Garðabæjar.
Stormjárn í gluggum endurnýjað.
Gluggar og útihurðar lakkaðir að innan sem og að utan.
Fataskápur endurnýjaður í forstofu.
Eldhús endurnýjað.
Baðherbergi endurnýjað
Þvottahús endurnýjað.
2019:Fataskápur settur upp í forstofu herbergi.
Allt rafmagn yfirfarið og endurnýjað.
Garðyrkjufræðingar grysjuðu og klipptu tré og runna í garði og endurnýjuðu grasflöt að hluta.
Bílastæðum fyrir framan hús fjölgað úr tveimur í þrjú.
2020:Garðskúr settur upp í garði.
2021:Skjólveggur með gleri settur í bakgarð.
Hellulagt í kringum garðskúr.
Grindverk með gönguhliði sett upp.
Steinhleðsla og gróðurreitur útbúin fyrir aftan garðskúr.
2023:Sérsmíðað vatnsbretti á útihurðar og járnáfellur yfir þröskulda á útihurðar að framan og að aftan.
2024:Allir gluggar yfirfarnir og málaðir að utan, skipt um gúmmílista og settir álbotnlistar á alla glugga.
Airforce eyjuháfur settur upp í eldhúsi.
2026:Skjólveggir að framan og að aftan málaðir.
Sjá nánari og ítarlegri upplýsingar um framkvæmdir og viðhald síðustu ára frá upplýsingablaði seljanda sem hægt er að nálgast hjá:
Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 777-0939 / arnor@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is