Fasteignaleitin
Skráð 14. mars 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares

ParhúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
141 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
58.400.000 kr.
Fermetraverð
414.184 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
500021024
Húsgerð
Parhús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Góð verönd, stórar svalir og möguleiki á þaksvölum
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTT PARHÚS – FRÁBÆR STAÐSETNING* – *ÖRSTUTT Í GOLF OG Á STRÖND*

Vönduð og falleg ný parhús á frábærum stað. Þrjú svefnherbergi,  tvö baðherbergi + gestasnyrting. Stór verönd, sér garður með möguleika á einkasundlaug. Einnig eru stórar svalir út frá svefnherbergi á efri hæð og möguleiki á stórri þakverönd yfir húsinu. Bílastæði inni á lokaðri lóð og möguleiki á bílskýli. Göngufæri á fallega strönd og einnig göngufæri á La Serena golfvöllinn, verslanir og veitingastaði. Einnig fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, Roda golf, Mar Menor, Lo Romero og fleiri. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli. Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt parhús á góðum stað í sólinni. Algjör fjölskylduparadís.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, karl@spanareignir.is. GSM 777 4277.


Hægt er að fá húsin fullbúin öllum húsgögnum gegn vægu aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.

Örstutt göngufæri er á fallega strönd og La Serena golfvöllinn. Fjöldi verslana og veitingastaða eru í nágrenninu og fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu.
Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf.

Verð frá 389.900 Evrum eða 58.400.000ISK + kostn. við kaupin. (miðað við 1 Evra = 150ISK)

Húsið er 141 fm. og möguleiki á 47fm þakverönd gegn aukagjaldi.
Möguleiki á einkasundlaug gegn aukagjaldi.
Í garðinum er stór verönd, yfirbyggð að hluta. Þar er hægt að vera með garðstofu eða bílskúr eftir óskum hver og eins.

Los Alcazares er ekta spænskur bær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt parhús með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld.  Að meðaltali  eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.


SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, einkasundlaug, sér garður, þakverönd, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
500021024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Benijofar
SPÁNAREIGNIR - Benijofar
Spánn - Costa Blanca
137 m2
Einbýlishús
433
432 þ.kr./m2
59.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR San Pedro del Pinatar
SPÁNAREIGNIR San Pedro del Pinatar
Spánn - Costa Blanca
163 m2
Einbýlishús
433
363 þ.kr./m2
59.200.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
122 m2
Einbýlishús
423
478 þ.kr./m2
58.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - San Fulgencio
SPÁNAREIGNIR - San Fulgencio
Spánn - Costa Blanca
101 m2
Einbýlishús
423
607 þ.kr./m2
61.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache