Til sölu Djúpahraun 21, 113,3 fm nýtt fjögurra herbergja, mjög bjart og sólríkt sumarhús (Frístundarhús) í landi Miðengis í Grímsnesi. Húsið er vandað og traustbyggt álklætt timburhús, grundað á steyptum sökkli og steyptri botnplötu og liggur á
7400 fm eignarlóð.
Húsið er enn í byggingu, en það verður afhent fullfrágengið. Við hækkandi byggingastig hækkar fasteignamat eignarinnar.Stór og rúmgóð 100 fm verönd með heitum potti umlykur suður og vesturhlið hússins þar sem hægt er að njóta sólar frá morgni til kvölds.
Mjög fallegur og vel staðsettur bústaður þar sem stutt er í golf, gönguferðir og aðra útivist. Sannkölluð paradís fyrir fjölskylduna.
Myndir eru úr öðrum sumarbústað sem er nákvæmlega eins.
Fáðu frítt verðmat fyrir þína eignAllir gluggar og hurðir eru Ál-tré. Á þaki er tvöfalt lag af ásoðnum tjörudúk. Innveggir eru klæddir með OSB plötum og gifsi. Loft í alrými er panelklætt. Húsið er allt hvítmálað að innan og með 60x60 cm ljós/ljósgráum flísum á öllum gólfum.
Lýsing á Húsinu:
Gengið er inní rúmgóðan
anddyrisgang með fataskáp. Úr anddyri er gengið inn í eitt af þremur herbergjum og inn annað af tveimur baðherbergjum, ásamt því að gengið er inn í stórt og bjart alrýmið.
Þrjú svefnherbergi eru í bústaðnum, fataskápar í þeim minni og fataherbergi með úttengi út á viðarpall úr hjónaherbergi.
Tvö baðherbergi eru í húsinu, sér baðherbergi úr hjónaherberginu og hitt er stærra gestabaðherbergi/þvottahús í anddyri með útgengi út á viðarpall.
Hvít innrétting með skúffuskáp er stærra baðherberginu. Spegill með lýsingu fyrir ofan innréttingu. Í báðum baðherbergjum er rúmgóð sturta með halla í gólfi sem liggur að niðurfalli. Gólf eru flísalögð og veggir sem snúa að sturtu eru flísalagðir. Einnar handar blöndunartæki eru á baðherbergjum.
Eldhúsið er opið með góðri eyju sem skilur eldhúsið frá stofu, í eyju eru allir neðriskápar með útdraganlegum skúffu, borðplata yfir eyju stendur út stofumegin þannig að hægt er að sitja á barstólum við eyju. Eldhúsinnrétting er með neðriskápum og plássi fyrir innbyggða uppþvottavél og fyrir innbyggðan ísskáp, allir skápar eru skúffuskápar með útdraganlegum skúffum. Innréttingar í eldhúsi eru hvítar. Spanhelluborð er í eyju og stór og góður vaskur er í innréttingu. Einnar handar blöndartæki eru í eldhúsi. Ljósar granít borðplötur eru í eldhúsi og á eyju.
Í eldhúsi er mjög góð lofthæð, stórir gluggar og bjart rými. Gólf eru flísalögð
Stofan er í sama rými og eldhúsið, stórir gluggar á öllum hliðum sem opna þetta bjarta rými, útgengt á rúmgóðan viðarpallinn til suðurs. Gengið er inní geymslu og lagnarými frá viðarpallinum.
Bústaðurinn er upphitaður með gólfhita. Öll lokuð rými eru loftræst.
Í öllum svefnrýmum eru topphengdir gluggar sem nýtast sem björgunarop 60x120 cm.
Húsið er hannað og teiknað af Verkfræðistofu Hauks Ásgeirssonar. Lokað hlið með símaaðgengi er fyrir hverfið.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á sem er 0.3% af endanlegu brunabótarmati.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is.