Fasteignaleitin
Opið hús:24. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 17. ágúst 2026

Grænakinn 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
80.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
58.900.000 kr.
Fermetraverð
729.864 kr./m2
Fasteignamat
65.600.000 kr.
Brunabótamat
44.950.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 1952
2. hæð · efsta
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2075001
Landnúmer
120627
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Raflagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Frárennslislagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Gluggar / Gler
Þarfnast skoðunar/lagfæringar/viðgerðar
Þak
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Ofnar
Gallar
Gufugleypir í eldhúsi er ekki virkur.
Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Virkilega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja hæð með suðursvölum í tvíbýlishúsi að Grænukinn 12 í Hafnarfirði. Eignin skiptist í forstofu/hol, 3 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu. Núverandi eigandi hagnýtir hlut af stofunni sem svefnherbergi. Frá stofu er útgengt á svalir sem snúa til suðurs með útsýni í gróinn sameiginlegan garð. Aðgengi að geymslulofti af stigapalli sameignar. Á jarðhæð er sameiginleg geymsla sem getur nýst sem hjóla- og vagnageymsla. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is 

Nánari lýsing:
Stigapallur: 
Frá stigapalli er aðgengi að stóru óskráðu geymslulofti sem nær yfir stóran hluta hæðarinnar. 
Forstofa/anddyri: Komið er inn í forstofu/hol sem sameinar flest rými íbúðarinnar. Á gólfum er parket sem flæðir yfir flest rými hæðarinnar að undanskildu eldhúsi og baðherbergi.
Eldhús: Nýlega uppgert eldhús búið innréttingu með dökkum viðarskápum og svörtum efri skápum, endurnýjuðum bakaraofni í vinnuhæð, helluborði og dökkri borðplötu. Flísar með hvítri og grárri marmaraáferð á gólfi og hvítar flísar milli efri og neðri skápa og á hluta veggja.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með háum innbyggðum fataskápum og hirslum. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Að undanskildu hjónaherbergi eru tvö svefnherbergi með parketi á gólfum. Núverandi eigendur hafa útbúið þriðja svefnherbergið úr hluta af stofunni. Auðvelt er að breyta stofunni í fyrra horf. 
Stofa/borðstofa: Bæði stofan og borðstofan eru í björtu rými með parketi á gólfi. Frá stofum er útgengt á suðursvalir sem snúa út í sameiginlegan gróinn garð.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Búið snotri hvítri innréttingu með handlaug, neðri og efri skápum, hirslum, speglaskáp, salerni, baðkeri með sturtuaðstöðu.
Geymsla: Á jarðhæð sameignar er sameiginleg geymsla ásamt því að frá stigapalli íbúðar er aðgengi að stóru óskráðu geymslulofti sem nær yfir stóran hluta hæðarinnar. 
Garður/lóð: Á bak við húsið er stór sameiginlegur gróinn garður. 

Um er að ræða fallega og vel skipulagða hæð á mjög vinsælum stað í Kinnahverfi Hafnarfjarðar þar sem stutt er í góðar samgönguæðar og stutt er í alla helstu þjónustu. Einnig er göngufæri í leik- og grunnskóla. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is 

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Gjaldskrá birt með fyrirvara.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/05/202241.000.000 kr.50.800.000 kr.80.7 m2629.491 kr.
25/06/201933.150.000 kr.30.000.000 kr.80.7 m2371.747 kr.
06/12/201216.200.000 kr.13.250.000 kr.80.7 m2164.188 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hringhamar 6
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
2.jpg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
80.9 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 26.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Hringhamar 6
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Hringhamar 5 Hluteildarlán.jpg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
73.6 m2
Fjölbýlishús
312
855 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Hringhamar 5 Hluteildarlán.jpg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
82.3 m2
Fjölbýlishús
312
789 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 6
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Hringhamar 5 Hluteildarlán.jpg
Skoða eignina Hringhamar 6
Hringhamar 6
221 Hafnarfjörður
74 m2
Fjölbýlishús
312
845 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin