STAKFELL S. 535-1000 KYNNIR Í EINKASÖLU: Falleg 97,9 fm, þriggja til fjögurra herbergja á jarðhæð, í fjölbýli í Efstahjalla, Kópavogi. Geymsla í sameign og sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla.
Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@stakfell.is.
Nánari lýsing: Eignin er skráð 97,9 m² en þar af geymsla 11,6 fm. Íbúð hefur verið breytt frá upprunalegri teikningu, eldhús fært inn í alrými með stofu og rými þar sem eldhús var lokað og gert auka herbergi.
Komið er inn í anddyri sem tengir rými eignar, eldhús og stofu í alrými, herbergi og gang þar sem tvö svefnherbergi og baðherbergi eru.
Eldhús er með dökkri, nýlegri innréttingu og ljósri borðplötu úr stein.
Stofa er björt og opin inn í eldhús, með útgengi á svalir.
Tvö rúmgóð svefnherbergi ásamt barnaherbergi.
Baðherbergi er með viðarlitaðri innréttingu, sturtu, vegghengdu salerni og flísalagt í hólf og gólf.
Gólfefni íbúðar er harðparket og flísar.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara þar sem hver íbúð hefur tengi fyrir sína vél. Sameiginleg hjólageymsla.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara hússins.
Íbúðin er vel staðsett miðsvæðis og stutt er í alla helstu verslun, þjónustu og samgöngur.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Stakfell fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.