Skráð 18. mars 2023
Deila eign
Deila

Jöfursbás 7A-304

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
70.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
61.900.000 kr.
Fermetraverð
881.766 kr./m2
Fasteignamat
4.720.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2022
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2518539
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðar í húsi
5
Hæðar í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Lóð
0,81
Upphitun
danfoss sameiginlegt
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
1 - Byggingarleyfi
Matsstig
3 - Risin bygging
Kvöð / kvaðir
Ákveðnir starfsmenn fasteignasölunnar eru óbeinir hluthafar í félaginu sem selur.
***Oscar Clausen lgf og DOMUSNOVA KYNNA * ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ***AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING***SÝNUM ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 17 - 18***
!!!AUKIN LOFTHÆÐ, SÉRSMÍÐAÐAR INNRÉTTINGAR TIL LOFTS, SUÐURSVALIR, GLERLOKUN Á SVALIR, GLÆSILEG SAMEIGN!!!
Jöfursbás 7a, Reykjavík - íbúð 0304, 70,2 fm 3ja herbergja
 íbúð á þriðju hæð, þar af geymsla 5,4fm. (merkt 0022).  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með tveimur góðum svefnherbergjum.  Suðursvalir út frá stofu.  
Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 280cm.


Íbúðirnar í húsinu eru mjög fjölbreyttar 2-4 herbergja. Stærðir frá 51 fm-138 fm. Bílastæði fylgir mörgum íbúðum og næg stæði fyrir utan hús.
Nánari upplýsingar á https://gufunesid.is/

Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

Lýsing íbúðar:
Forstofa 
rúmgóð með innbyggðum fataskáp 
Eldhús rúmgott með sérsmíðaðri innréttingu frá VOKE-lll  með góðu skápaplássi.  Innbyggð vönduð tæki.  Efri skápar ná til lofts.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum.  Opið frá eldhúsi inn í borðstofu.
Borðstofa semtengd stofu næst eldhúsi og út frá henni er gólfsíður gluggi með útsýni til sjávar og hurð með útgengi á svalir til vesturs.  
Stofa með gólfsíðum glugga og útgengi suðursvalir með frágenginni svalalokun.
Baðherbergi flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein frá Technistone  
Hjónaherbergi er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Svefnherbergi # 2 er rúmgott með góðum fataskáp
Svefnherbergi # 3 er er mögulegt að setja innaf stofu
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 


Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.


NÁNARI LÝSING:
HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum.  Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum. 
HÚSIÐ: Húsið er  klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR:  Aukin lofthæð í flestum íbúðum, 280 cm og gólfsíðir gluggar víða.  Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE
Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG.  Span hellurborð, Vifta útdraganleg AEG Ciak Led Veggofn.  Í íbúðum þar sem er eyja eru viftur af gerðinni AEG Airvorce-eyjuháfur Luna, hvítur.
Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless).  Blöndunartæki eru öll í krómi frá Grohe. 
Íbúðirnar afhendast með vönduðu harðparketi á meginflötum en á baðherbergi eru vandaðar ljósgráar 60x60cm flísar frá EBSON. 
BÍLAKJALLARINN OG GEYMSLUR:  Bílastæði fylgir flestum íbúðum og góðar geymslur. 
SAMEIGINLEGUR GARÐUR:  Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. 
AFHENDING: Fyrstu íbúðir eru til afhendingar í mars 2023.
 
Hafið samband við eftirfarandi fasteignasala til að skoða:
Oscar Clausen s. 861-8466 eða oc@domusnova.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.

Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3%
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Agnar Agnarsson
Agnar Agnarsson
Löggiltur Fasteignasali

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 7A-403
Jöfursbás 7A-403
112 Reykjavík
70.6 m2
Fjölbýlishús
312
877 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 7
Skoða eignina Jöfursbás 7
Jöfursbás 7
112 Reykjavík
69 m2
Fjölbýlishús
312
897 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 7A-303
Jöfursbás 7A-303
112 Reykjavík
70 m2
Fjölbýlishús
312
884 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 7A-103
Jöfursbás 7A-103
112 Reykjavík
72.5 m2
Fjölbýlishús
312
826 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache