***Domusnova kynnir í sölu 35 fm lagerhúsnæði sem hentar fyrir hvers konar rekstur eða einstaklinga***
*** Eignin getur verið til afhendingar við kaupsamning***Nýlegt glæsilegt atvinnu-frístunda- og/eða hobbý rými til sölu á malbikaðri afgirtri lóð með lokuðu rafstýrðu hliði og öryggismyndavélum við Borgarhellu 19 B, Hafnarfirði. Samtals eru 49 bil á sameiginlegri lóð.
Möguleiki á
milligólfi. Fasteignin er byggð úr
límtré ásamt burðarvirki þess.
Þak og útveggir eru klæddir með vottuðum stál samlokueinignum frá
Límtré/Vírnet með harðpressaðri steinull.
Vegghæð við útvegg er
3,5 metrar og 4,7 metrar innst í hverju bili
Innkeyrsluhurð 3,0 x 2,5m
Gólf vélslípað og málað.
Skolvaskur innst í bili með blöndunartæki.
Niðurfall í gólfi.
Hitaveita sameiginleg fyrir öll geymslurýmin og er húsnæðið hitað upp með hefðbundnu ofnakerfi.
Varmaskiptir er við inntak heita vatnsins.
Lagnir fyrir
salernisaðstöðu tilbúnar til tengingar. Ennfremur sameiginlegt salerni og inntaksrými við enda hússins.
Rafmagnsmótor á innkeyrsluhurð með fjarstýringu.
Innkeyrsluhurð er 3 metra há og
inngönguhurð við hlið hennar inn í bilið.
Raflögn frágengin með
3ja fasa rafmagni og rafmagstöflu fyrir bilið.
Lýsing í loftum frágengin.
Lóð fullfrágengin, malbikuð,
girt af og með sjálfvirku rennihliði með fjarstýringu.
Sorptunnugeymsla er á lóð.
Sameiginleg salernisaðstaða í mhl.01 ásamt inntaksrými.
Bílastæði á lóð eru 18 og þar af 3 fyrir hreyfihamlaða .
Mögulegt að koma upp
rafhleðslustöð á bílastæði.
Eignarhluti merktur 01-0102 í húsinu við Borgahella 19B 221 HafnarfirðiEignarhlutinn er skilgreindur með eftirfarandi hætti í eignaskiptayfirlýsingu fyrir heildareignina:
Eign:......................Matshluti:...Fasteignanúmer:..Birt stærð:Borgahella 19 B....01-0102......251-6721................35 fm.
Nánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.