Fasteignaleitin
Opið hús:02. des. kl 16:30-17:00
Skráð 26. nóv. 2026

Eyjabakki 24

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
111.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.000.000 kr.
Fermetraverð
620.504 kr./m2
Fasteignamat
67.400.000 kr.
Brunabótamat
62.350.000 kr.
Mynd af Ævar Örn Jóhannsson
Ævar Örn Jóhannsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1970
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Baðkar
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2047483
Landnúmer
111848
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Drenað um 2010
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta (suður hlið)
Þak
Endurnýjað þakjárn
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Hitaveita / ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
- 3 svefnherbergi
- Vel rekið og vel stætt húsfélag
- Suður svalir


Íbúðin er skráð 111,2 fm samkvæmt HMS, fjögurra herbergja á þriðju hæð.

Eignin hefur fengið gott viðhald og ber þar helst að nefna:
- Drenað um 2010
- Klædd og viðhaldslétt suðurhlið
- Norðurhlið múrviðgerð og máluð 2021
- Gler endurnýjað á suðurhlið
- Þakjárn endurnýjað
- Snjóbræðsla er í hellulagðri stétt frá bílastæði að inngang.

Að innan hefur verið skipt um hurðar í svefnherbergjum og einnig ofna.

Stigagangur er teppalagður og snyrtilegur.
Stór sameiginlegur garður með leiktækjum á lóð.

Nálægð við fallegt útivistarsvæði í Elliðaárdal.
Göngufæri í skóla, leikskóla, sundlaug og íþróttasvæði Leiknis.
Mjóddin einnig skammt undan með allri helstu þjónustu.

*Minni á happdrætti Pálsson fastaeignasölu en allir sem mæta í opið hús fá ókeypis miða í pottinn.
Vinningshafar dregnir út viku fyrir jól, fimmtudaginn 17. desember.


Nánari upplýsingar veitir:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.is

Nánari lýsing eignar:
Gengið er inn í parketlagða forstofu með opnu fatahengi.
Eldhús er beint af augum, flísalagt gólfefni og viðarlituð innrétting. Hvítar flísar eru á milli efri og neðri skápa. Bakaraofn, helluborð, vifta og pláss í innréttingu fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi er rúmgott og parketlagt. Þar er einnig rými til að útbúa lítið fataherbergi. 
Tvö önnur svefnherbergi eru einnig parketlögð og rúmgóð með skápaplássi. 
Stofan er parketlögð, stór og björt með útgengi út á svalir sem snúa í suðurátt.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og upp á miðjan vegg. Útbúið baðkari með glerskilrúmi og sturtuhaus, hillu og skáp með lýsingu og spegi, hvítri vaskinnréttingu með skúffum og hvítu salerni. 
Þvottahús er inn af baðherbergi.
Sér geymsla er í kjallara.
Sameiginleg hjólageymsla og annað geymslurými er einnig í kjallara.


www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/11/200617.605.000 kr.19.300.000 kr.111.2 m2173.561 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyjabakki 24
Opið hús:02. des. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Eyjabakki 24
Eyjabakki 24
109 Reykjavík
111,2 m2
Fjölbýlishús
413
621 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Mánatún 3 - 205
Bílastæði
Opið hús:30. nóv. kl 12:00-12:30
Mánatún 3 - 205
105 Reykjavík
127,1 m2
Fjölbýlishús
413
857 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Mánatún 3 - 205
Opið hús:30. nóv. kl 12:00-12:30
Mánatún 3 - 205
105 Reykjavík
127,1 m2
Fjölbýlishús
413
857 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 5
Bílastæði
Skoða eignina Ásvellir 5
Ásvellir 5
221 Hafnarfjörður
105,5 m2
Fjölbýlishús
312
1013 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin