Fasteignaleitin
Opið hús:31. okt. kl 15:00-15:30
Skráð 27. okt. 2026

Barmahlíð 33

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
124.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
843.248 kr./m2
Brunabótamat
64.550.000 kr.
Byggt 1960
Sérinng.
Fasteignanúmer
20306235
Húsgerð
Hæð
Inngangur
Sérinngangur

Prima fasteignasala og Oscar Clausen lgf. kynna eignina Barmahlíð 33, 105 Reykjavík. Björt og mikið endurnýjuð 5 herbergja sérhæð með bílskúrsrétti
Að Barmahlíð 33 er til sölu björt, mikið endurnýjuð og vel skipulögð 124,4 fm 5 herbergja sérhæð á 1. hæð í hinu vinsæla og fjölskylduvæna Hlíðahverfi (105 Reykjavík). Eigninni fylgir bílskúrsréttur og 1,2 fm sérgeymsla.
Íbúðin hefur fengið miklar og vandaðar endurbætur á árunum 2022–2023 þar sem skipulagi var breytt til að hámarka nýtingu og þægindi. Hún skartar nú fjórum svefnherbergjum, opnu og björtu alrými og alveg nýuppgerðu baðherbergi og eldhúsi.


Nánari lýsing og framkvæmdir seljanda (2022–2023):
Alrými & Eldhús: Eldhús var fært inn í stofu og tvær stofur opnaðar saman í eina stóra, bjarta alstofu. Opið frá gangi inn í stofu var jafnframt stækkað. Ný glæsileg eldhúsinnrétting var sett upp ásamt nýrri rafmagnstöflu fyrir eldhús. Búið er að draga rafmagn fyrir eyju í eldhúsinu (tilbúið til tengingar).
Svefnherbergi (4 stk): Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni, með því að færa eldhúsið voru reistir veggir þar sem eldhúsið var áður og búið til fjórða svefnherbergið. Íbúðin hentar því einstaklega vel fyrir stærri fjölskyldur eða þá sem þurfa gott vinnurými/skrifstofu.
Forstofa & Gangur: Veggur milli forstofu og gangs var brotinn niður til að opna rýmið og skapa meira flæði.
Baðherbergi: Baðherbergið var endurnýjað að fullu og nýr gluggi settur í.
Lagnir & Varmaskiptir: Nýjar neysluvatnslagnir voru lagðar í bæði eldhús og baðherbergi. Settur var upp varmaskiptir fyrir neysluvatn þannig að heita vatnið úr krönum og sturtu er upphitað neysluvatn.
Rafmagn: Nýir rafmagnsvírar og rafmagnsdósir voru dregnir um alla íbúðina. Innstungum var fjölgað verulega (stækkað úr 1 í 2–3 á flestum stöðum).
Gólfefni: Gólfið var flotað og nýtt fljótandi parket var lagt á alla íbúðina.
2024 var  drenað í kringum húsið og skólp tekið í gegn.

Staðsetning:
Frábær staðsetning í Hlíðunum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og fjölbreytta útivistarmöguleika á Klambratúni og Öskjuhlíð. Stutt og þægilegt göngufæri er í miðbæ Reykjavíkur.
Samantekt: Hér er um að ræða afar fjölskylduvæna og talsvert endurnýjaða sérhæð á frábærum stað í 101 Reykjavík þar sem stærstu og erfiðustu framkvæmdunum er þegar lokið!


Nánari upplýsingar veita:
Oscar Clausen löggiltur fasteignasali / s.8618466 / oc@primafasteignir.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Prima fasteignasala ehf.
http://www.primafasteignir.is

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háteigsvegur 32
Opið hús:31. okt. kl 14:00-14:30
IMG_5623.JPG
Skoða eignina Háteigsvegur 32
Háteigsvegur 32
105 Reykjavík
144,9 m2
Fjölbýlishús
412
862 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (201)
Vorbraut14.jpg
Vorbraut 14 (201)
210 Garðabær
128,8 m2
Fjölbýlishús
423
931 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (204)
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (204)
210 Garðabær
131,6 m2
Fjölbýlishús
423
911 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (301)
kjartan_vefur-301.jpg
Vorbraut 14 (301)
210 Garðabær
130,3 m2
Fjölbýlishús
423
943 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin