ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina glæsilega íbúð í lyftuhúsi við Tjarnabraut 4, 260 Reykjanesbær, íbúð 303, birt stærð 83.3 fm. þarf af er 5,9 fm geymsla.Um er að ræða einstaklega fallega íbúð á 3. og efstu hæð með rúmgóðum svölum og glæsilegu útsýni. Eignin samanstendur af forstofu með fataskáp, þrjú svefnherbergi með fataskápum, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Alrými sem telur eldhús og stofu/borðstofu.
** Frábær staðsetning í nálægð við skóla og leikskóla og alla verslun og þjónustu. Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og örstutt er á Reykjanesbraut.** Byggt 2023.
** Þrjú svefnherbergi.
** Gólfhiti.
** Fallegar sérsmíðaðar innréttingar og vönduð heimilistæki.
** Fataskápar frá GKS.Nánari upplýsingar veitir/veita:
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.
Sigurjón Rúnarsson Aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 771-9820, tölvupóstur sigurjon@allt.is
Sæktu húsfélagsyfirlýsingu, söluyfirlit ofl hér Nánari lýsing eignar:Eldhús: Sérsmíðaðar innréttingar, vönduð tæki í eldhúsi frá AEG, spanhelluborð, uppþvottavél og kæliskápur.
Stofa er í opnu rými með eldhúsi, björt og rúmgóð með útgengi út á góðar svalir.
Herbergin eru 3, rúmgóð og með hvítum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með smekklegum flísum, walk in sturta, vegghengt salerni og góð innrétting og speglaskápur. Tengi fyrir þvottavél er inná baði.
Umhverfi: Malbikað bílastæði og snjóbræðsla í gangstéttum. Gott hjólaskýli fyrir framan hús. Geymsla á 1 hæð.
Lóð ásamt bílastæðum er í óskiptri sameign.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 59.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.