ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu bjart og fallegt endaraðhús að Svölutjörn 2, 260 Reykjanesbæ.Eignin er vel skipulögð á einni hæð, hefur 3 svefnherbergi og innangengan bílskúr, birt heildar stærð eignarinnar er 154,6 fm.
Eignin telur anddyri, opið alrými með stofu, eldhúsi og borðstofu, þaðan er útgengt út á sólpall með heitum potti. Rúmgott baðherbergi með hornbaðkari, gestasalerni og 3 svefnherbergi. Þvottahús/geymsla, þaðan er einnig útgengt út á sólpall, ásamt bílskúr.
Geymsluloft er yfir húsinu og í bílskúr.
Nánari upplýsingar veita:
Halla Vilbergsdóttir nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.is.
Unnur Svava Sverrisdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555, tölvupóstur unnur@allt.isNánari lýsing Anddyri: Er með flísum á gólfi og klæðaskáp.
Eldhús: Er með eikarinnréttingu, bakarofni í vinnuhæð. Pláss er fyrir tvöfaldan ísskáp og uppþvottavél, mikið borð og skápapláss.
Stofa og borðstofa: Er í alrými með eldhúsi. Bjart og með útgengt út á stóra verönd ca 70 m2 með heitum potti. Útgengi út í garð frá verönd.
Baðherbergi: Er stórt, flísalagt í hólf og gólf. Eikarinnrétting með bæði efri og neðri skápum, hornbaðkari og upphengdu salerni.
Gestasalerni: Flísalagt í hólf og gólf með ljósum flísum, handlaug og klósetti
Þvottahús/geymsla: Er með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara og útgengi út á sólpall.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með stórum klæðaskápum
Herbergi ll: Er rúmgott með klæðaskáp
Herbergi lll: Er rúmgott með klæðaskáp.
Bílskúr: Er með rafmagnshurð og er innangengur frá íbúð. Einnig er geymsluloft yfir hluta bílskúrs.
Hiti í gólfum og gólfefni eru flísar.
Hiti er einnig í bílaplani.
Steypt ruslatunnuskýli
Sólpallur að framan og aftan
Endurbætur á vegum seljanda árið 2025:- Pallur, skjólveggur og girðing að framan byggt
- Tröppur hjá heitapotti settar upp
- Húsið sílað að utan
- Gluggar og hurðar að utan pússaðar og málaðar
- Múrað og málað meðfram gluggum og hurðum
- Skipt um perustæði í öllum ljósum
- Nýlegur gufugleypir
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.