Kasa fasteignir - 461-2010
Svarfaðarbraut 12 - Mikið endurnýjað 5 herbergja 181,2 fm einbýlishús á pöllum með bílskúr og gróinni lóð á frábærum stað á Dalvík.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, borstofu, hol, 4 svefnherbergi, baðherbergi, geymslur, þvottahús og bílskúr ásamt nýlegum sólpalli.Forstofa: Flísar á gólfum, opið fatahengi.
Stofa: Bjart rými með stórum gluggum. Parket á gólfum.
Eldhús: Dökk innrétting með góðu skápa plássi, keramik helluborð, bakraofni í vinnuhæð og borðkróki. Flísar á gólfum.
Hol: Er með flísum á gólfi, úr holi er gengið upp á efripall og niður á neðripall.
Herbergi: Eru þrjú á efri palli, öll með parketi á gólfum, hjónaherbergi er með rúmgóðum fataskáp. Herbergi á neðripalli er með fataskáp og dúk á gólfi.
Baðherbergi er nýlega uppgert flísalagt gólf og plastplötur á veggjum, ný innrétting með góðu skápa og skúffuplássi. Vegghengt salerni, innangeng sturta með dökku gleri, innfeld blöndunartæki og handklæðaofn.
Þvottahús er í bílskúr, þar er nýleg sérsmíðuð innrétting frá Brúnás með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Vaskur er í borðplötu.
Bílskúr er með steyptu gólfi, nýleg bílskúrshurð - ekki er mótor á hurðinni.
Geymslur: Nokkur geymslupláss eru í eigninni. þar má nefna eina undir stiga upp á efripall, tvö háaloft og útgeymslu undir stiga fyrir framan andyri.
Árið 2022 kom upp leka mál í einu herbergi hússins, var það farið í talsverðar endurbætur á eigninni:- Búið er að skipta um þak á norðurhluta hússins.
- Búið er að klæða norðurhluta hússins með timburklæðningu.
- Búið er að skipta um glugga að hluta til, aðalega í norðurhluta hússins.
- Skipt var um útidyrahurð, aðalhurð og gönguhurð í bílskúr.
Í kjölfarið var farið í að:- Taka inn ný inntök, fyrir heitt og kalt vatn.
- Inntak fyrir ljósleiðara.
- Nýjar skólplagnir teknar inn í húsið
- Nýtt rafmagn dregið í hluta eignar ásamt því að endurnýja rafmagnstöflur.
- Baðherbergi endurnýjað, tæki og tól eru frá Tengi.
- Rúmgóður sólpallur með lýsingu og lögnum fyrir heitum potti.
- Nýjir tenglar og rofar.
Annað: - Frábær staðsetning miðsvæðis á Dalvík.
- Gróinn stór garður.
- Lagnir lagðar út fyrir heitum potti.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.