Fasteignaleitin
Opið hús:21. apríl kl 17:00-17:30
Skráð 19. apríl 2026

Skógarás 7

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
129.3 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
91.900.000 kr.
Fermetraverð
710.750 kr./m2
Fasteignamat
89.600.000 kr.
Brunabótamat
66.350.000 kr.
Mynd af Elín Urður Hrafnberg
Elín Urður Hrafnberg
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2046583
Landnúmer
111529
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
02
Raflagnir
í lagi
Gluggar / Gler
gott
Þak
gott
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: Virkilega góða og vel skipulagða 6 herbergja íbúð á tveimur hæðum á vinsælum stað í Árbænum.
Um er að ræða 129,3 fm sem skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, þvottahús, hjónaherbergi, barnaherbergi og baðherbergi.
Á efri hæð er stórt alrými þar sem hægt er að vera með sjónvarpshol, tvö barnaherbergi og tvær góðar geymslur undir súð, báðar parketlagðar. 
Eignin er töluvert stærri en uppgefnir fermetrar þar sem efri hæðin er undir súð. 
Endurbætur sem hafa átt sér stað á húsinu að utan og innan:
2020 Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu.
2020 Þak hússins var endurnýjað.
2021 Gluggar endurnýjaðir að hluta í blokkinni.
2026 Búið er að samþykkja viðgerð sem seljendur greiða, þar sem klára á að endurnýja þá glugga sem átti eftir að endurnýja og útihurðir á blokkinni verða einnig endurnýjaðar. 
2019 Nýtt harðparket sett á íbúðina.
2019 Innihurðir voru endurnýjaðar.
2025 ofnar endurnýjaðir á efri hæðinni. 

Video hlekkur hér: https://vimeo.com/1184561726?share=copy&fl=sv&fe=ci

Eignin Skógarás 7 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-6583, birt stærð 129.3 fm. Nánar tiltekið eign merkt 03-02, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir:
Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða gimli@gimli.is

Lýsing eignar:
Neðri hæð

Forstofa/hol: harðparket á gólfi og innbyggður skápur.
Setustofa: rúmgóð og björt, útgengi á svalir með fallegu útsýni
Eldhús: upprunalega eldhúsinnrétting, tengi fyrir uppþvottavél sem getur fylgt með, spanhelluborð, ofn, borðkrókur dúkur á gólfi og gluggi sem verður endurnýjaður á þessu ári. 
Þvottahús: er inn af eldhúsi með tengi fyirir þvottavél og þurrkara og hillur á vegg. 
Baðherbergi: flísar á veggjum og gólfi, viðarinnrétting með vaski og stórum spegli fyrir ofan, baðkar, sturta með hengi, handklæðaofn og upphengt salerni.
Hjónaherbergi #1: rúmgott herbergi, harðparket á gólfi og rúmgóðir fataskápar.
Svefnherbergi #2: gott barnaherbergi með harðparketi á gólfi. 

Efri hæð:
Gengið um stálhringstiga upp á efri hæð íbúðarinnar.
Alrými: virkilega rúmgott og bjart með parketi á gólfi og velux loftgluggum, rúmgott sjónvarpshol og þar væri líka hægt að stúka af auka svefnherbergi (þá fimmta svefnherbergið) í hluta af rýminu ef á þarf að halda.
Svefnherbergi #3: rúmgott herbergi með parket á gólfi og velux loftglugga. 
Svefnherbergi #4: rúmgott herbergi með parket á gólfi, skáp og velux loftglugga. 
Geymslur: eru undir súð sitthvoru megin á efri hæðinni og er önnur með harðparketi.
Sameign: hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð í sameign hússins.

Niðurlag:
Virkilega fjölskylduvæn íbúð á vinsælum stað í Selási sem vert er að skoða, örstutt í skóla og leikskóla og fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði í næsta nágrenni.

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/04/202257.600.000 kr.80.000.000 kr.129.3 m2618.716 kr.
07/09/201631.900.000 kr.38.600.000 kr.129.3 m2298.530 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Meistaravellir 33
IMG_5250.JPG
Meistaravellir 33
107 Reykjavík
83.2 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
74.500.000 kr.
Skoða eignina Heiðarholt 30
Skoða eignina Heiðarholt 30
Heiðarholt 30
230 Reykjanesbær
78 m2
Fjölbýlishús
312
588 þ.kr./m2
45.900.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (502)
áshamar jpg.jpg
Áshamar 56 (502)
221 Hafnarfjörður
129.5 m2
Fjölbýlishús
313
761 þ.kr./m2
98.500.000 kr.
Skoða eignina Silfursmári 2 - 301
stebbi_vefur (11).png
Silfursmári 2 - 301
201 Kópavogur
75.1 m2
Fjölbýlishús
211
952 þ.kr./m2
71.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin