Fasteignaleitin
Skráð 28. sept. 2026

Grundargarður 7

FjölbýlishúsNorðurland/Húsavík-640
114.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
39.800.000 kr.
Brunabótamat
62.950.000 kr.
Byggt 1980
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2152763
Landnúmer
150369
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
04
Vatnslagnir
Upprunanlegt
Raflagnir
Talið í lagi
Frárennslislagnir
Upprunanlegt
Gluggar / Gler
Talið í lagi
Þak
Upprunanleg
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já, úr stofu
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Lögeign kynnir eignina Grundargarður 7, 640 Húsavík, nánar tiltekið eign merkt 304

Um er að ræða bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð í fjöleignarhúsi. Eignin er vel staðsett miðsvæðis á Húsavík, stutt frá allri helstu þjónustu. Skráð stærð eignarinnar er 114,1 m² og þar af er um 7 m² sérgeymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og gang.

Nánari lýsing;

Forstofa er í opnu og björtu rými með góðri tengingu við eldhús og aðra hluta íbúðarinnar.
Eldhús er rúmgott og snyrtilegt með hvítri innréttingu, bæði efri og neðri skápum og góðu vinnuplássi. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Eldhúsið er opið að stofu og mynda rýmin saman bjart og rúmgott alrými.
Stofa er rúmgóð og björt með stórum gluggum. Úr stofu er útgengi út á svalir. Veggur á milli stofu og herbergisgangs er opinn í báða enda og býður skipulag eignarinnar upp á möguleika á að útbúa fjórða svefnherbergið.
Svefnherbergi eru fjögur. Tvö barnaherbergi eru minni að stærð og er annað þeirra með fataskápum. Hjónaherbergið er rúmgott og með góðum fataskápum. Búið er að bæta við herbergi við enda gangsins sem minnkar stofuna sem því nemur.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað að hluta og er flísalagt á gólfi. Þar er sturta, salerni og handlaug með innréttingu og spegli. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er í kjallara og tilheyrir íbúðinni, um 7 m² að stærð.
Harðplastparket er á gólfum íbúðarinnar að undanskildu baðherbergi sem er flísalagt.
Endurbætur. Árið 2016 var skipt um glugga, gler, gluggakistur, útihurðir og svalahandrið. Einnig hefur verið farið í múrviðgerðir og húsið málað í framhaldinu. Þakrennur og niðurföll voru endurnýjuð árið 2010.

ATH! Tilboðsfrestur er til mánudagsins. 5. október 2026 til kl 16:00. Tilboð eru gerð hjá Lögeign fyrir þann tíma og verða tekin fyrir á næsta fundi Byggðarráðs Norðurþings þar á eftir. Seljandi áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.  

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lfs. í síma 865-7430 eða netfanginu hermann@logeign.is eða Hinrik Lund lfs. í síma 835-0070 eða netfanginu Hinrik@logeign.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lögeign
www.logeign.is

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásvellir 3 íb. 403
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:30. sept. kl 16:30-17:30
Ásvellir 3 íb. 403
221 Hafnarfjörður
113.5 m2
Fjölbýlishús
413
995 þ.kr./m2
112.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 9
Opið hús:30. sept. kl 17:00-17:30
Leifsgata24_aðalmynd (2).jpg
Skoða eignina Vorbraut 9
Vorbraut 9
210 Garðabær
100.1 m2
Fjölbýlishús
413
998 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Ásvellir 3 íb. 401
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:30. sept. kl 16:30-17:30
Ásvellir 3 íb. 401
221 Hafnarfjörður
98.6 m2
Fjölbýlishús
312
1013 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 9
Opið hús:30. sept. kl 17:00-17:30
Vorbraut .jpg
Skoða eignina Vorbraut 9
Vorbraut 9
210 Garðabær
101 m2
Fjölbýlishús
413
1019 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin