Helgafell fasteignasala, Hólmar Björn Sigþórsson lögiltur fasteignasali og Ragnheiður Árnadóttir, í námi til löggildingar, kynna vel skipulagt 4ra herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr. Eignin er samtals 164,4 fm. þar af er íbúðarhlutinn 128,4 fm. og bílskúr 36 fm.Eignin skiptist í forstofu, eldhús / borðstofu, stofu, gang, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXNánari lýsing:
Anddyri: Komið er inn í rúmgott anddyri með góðum fataskáp, flísar á gólfi.
Forstofa: Parketlögð, skenkur í forstofu fylgir með.
Eldhús / Borðstofa: Góð innrétting, span helluborð, bakarofn AEG, gott vinnupláss, flísar á milli skápa, ljós yfir borðstofuborði fylgja með, hiti í gólfi, flísar á gólfi. Hægt er að fá borðstofuborðið með.
Stofa: Björt stofa, útgengt út á pall, parket á gólfi, hillueining undir sjónvarpi getur fylgt með.
Baðherbergi: Hvít innrétting, spegill með ljósastillingu, hornbaðkar, upphengt salerni, handklæðaofn, hiti í gólfi, flísalagt í hólf og gólf.
Hjónaherbergi: Góðir fataskápar, útgengt út á pall, parket á gólfi.
Herbergi 2: Rúmgott herbergi, parket á gólfi.
Herbergi 3: Rúmgott herbergi, með fataskáp, parket á gólfi.
Gangur: Parketlagður, skenkur við forstofu fylgir með.
Þvottahús: Hvít innrétting, flísalagt, hiti í gófli, handklæðaofn, útgengt útí garð, gengið inn í bílskúr.
Bílskúr: Flísalagður, hiti í gólfi, hurðaopnari, heitt og kalt vatn, stýringar fyrir heita pottinn, þriggja fasa rafmagn, digitalmælar í töflu, hillur í skúrnum fylgja með.
Lóð: Gróin falleg 719,9 fm, lóð. Framan við húsið er möl í bílaplani, gras er umhverfis lóðina. Ca. 56 fm. pallur, nýlegur heitur pottur, skjólveggir byggðir '21. Ídráttarrör fyrir hita í bílaplaninu.
Húsið: Húsið er byggt 2007 og er timburhús klætt með steni, lýsing er í þakskyggni allan hringinn, aluzink er á þakinu.
Hér er um að ræða gott fjölskylduhús, vel staðsett, í nýju hverfi. Eign sem vert er að skoða.Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.Ragnheiður Árnadóttir, í námi til löggildingar í síma 697-6288 eða ragnheidur@helgafellfasteignasala.is.