Lind fasteignasala / Tara Sif Birgisdóttir lögg. fasteignasali kynnir einstaklega fallega þriggja herbergja 90 fm íbúð á 3. og efstu hæð með glæsilegu útsýni í nýlegu lyftuhúsi við Hraungötu 25 í Urriðaholti í Garðabæ. Innréttingar frá Formus, Silestone borðplötur eru á eldhúsi og baðherbergi og innfelld lýsing í lofti. 11,9 fm svalir sem snúa til suðvesturs með glæsilegu útsýni, þvottahús og geymsla innan íbúðar og sameign rúmgóð og snyrtileg. Eignin er vel staðsett í fjölskylduvænu hverfi, en stutt er í alla helstu þjónustu og er m.a. leik- og grunnskóli, sundlaug og golfvöllurinn Oddur í göngufæri og falleg náttúra allt um kring.Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, borðstofu/stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing:
Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Borðstofa/stofa: Parket á gólfi, útgengt á svalir sem snúa til suðvesturs.
Eldhús: Innrétting með hvítri borðplötu og góðu skápaplássi, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar í vinnuhæð, span helluborð.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, innrétting með hvítri borðplötu, upphengt salerni, sturta.
Hjónaherbergi: Rúmgott, parket á gólfi, stór fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Þvottahús: Flísar á gólfi, innrétting með góðu skápaplássi, tengi fyrir þvotta- og uppþvottavél, vaskur.
Allar upplýsingar um eignina veitir Tara Sif Birgisdóttir í 847 8584 / tara@fastlind.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.