ALLT Fasteignasala kynnir í einkasölu mikið endurnýjað 4 herbergja steypt einbýlishús með tvöföldum bílskúr við Hólagötu 6 í Sandgerði, Suðurnesjabæ.
Aðeins 40 mínútúr frá höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða vel skipulagt einbýlishús, birt stærð er
189,9 fm þar af
49,9 fm bílskúr, á vinsælum stað í Sandgerði. Stutt í alla þjónustu.
Bílaplan er hellulagt og lóð er afgirt. Fallegur ræktaður, skjólmikill garður, stór verönd á suður og vestur hlið, nýlegur heitur pottur með sírennsli í gegnum affall hússins og nýrri hitastýringu. Tekur bara nokkrar mínútur að gera tilbúinn!
*Þrjú svefnherbergi með möguleika á að bæta við fjórða herberginu í bílskúrnum
*gluggar og útihurðir endurnýjað
*hurðir og gerefti endurnýjað að hluta
*þak yfirfarið og málað með skipalakki, nýjar flasningar og þakkantur málaður undir auk þess sem loftun var bætt.
*heitur pottur staðsettur í skjólmiklum garðinum
*ný öryggi í rafmagnstöflu
*hitaveitugrind endurnýjuð að hluta
*bílhleðslustöð uppsett
Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi, ný útidyrahurð.
Gestasalerni með flísum á gólfi, lítil innrétting og upphengt salerni.
Hol,
borðstofa og
stofa eru í opnu og björtu rými með harðparketi á gólfum, hurð er út á stóra afgirta verönd.
Stórt eldhús er í sama rými, flísar eru á gólfi og gólfhiti, stór hvít innrétting og nýleg tæki.
Þvottarhús er rúmgott og innangengt úr eldhúsi, þar eru flísar á gólfi, góð innrétting og hurð út á baklóð.
þrjú svefnherbergi, öll mjög rúmgóð með harðparketi á gólfum.
Baðherbergið er nýlega uppgert með flísum á gólfum og gólfhita, nýleg innrétting og tæki.
Bílskúr er tvöfaldur með tveim aksturshurðum og einni gönguhurð, önnur aksturshurðin er nýleg með rafmagnsopnara. Stórt herbergi er innst í skúrnum sem hægt er að nýta sem fjórða herbergið.
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir:
Elín Frímannsdóttir
Aðstoðarmaður fasteignasala
elin@allt.is
560-5521 / 867-4885Ásta María Jónasdóttir
Löggiltur fasteignasali
asta@allt.isALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ | Víkurbraut 62, 240 Grindavík | Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ Kostnaður kaupanda: Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.500.
Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir, er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.