Fasteignaleitin
Skráð 8. júní 2026

Oddabraut 19

EinbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
246.3 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
95.900.000 kr.
Fermetraverð
389.363 kr./m2
Fasteignamat
78.800.000 kr.
Brunabótamat
115.550.000 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
8933276www.helgafellfasteignasala.isEignalisti
Geymsla 27m2
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2212593
Landnúmer
172095
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Sagðar í lagi.
Raflagnir
Sagðar í lagi.
Frárennslislagnir
Sagðar í lagi.
Gluggar / Gler
Endurnýjaðir í eldhúsi 2020 / Nýir stofugluggar fylgja með óuppsettir / Aðrir gluggar þarfnast lagfæringar eða endurnýjunar.
Þak
Þakjárn endurnýjað nýlega.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Stór suður sólpallur og pallur framna við húsið.
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita / Sögð í lagi.
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Bílskúrshurðaopnari er bilaður. 
Smávægilegur leki í bílskúr. 
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Oddabraut 19, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða gott og vel skipulagt 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 246,3 fm og þ.a. er íbúðarhluti 202 fm. og bílskúr 44,3 fm. Garðurinn er fallegur og skjólsæll með nýjum afgirtum suður sólpall á baklóð. Einstaklega vel staðsett hús miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. grunn- og leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug og verslanir. 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Skipulag eignar:
Neðri hæð: 
Forstofa, stórt svefnherbergi (gamli bílskúr) og geymsla inn af því, þvottahús, gestasalerni, hitakompa og bílskúr. 
Efri hæð og efri pallur:  Stofa / borðstofa, eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi og gangur.

Nánari lýsing: 
Neðri hæð:

Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með stiga upp á efri hæð, fatahengi, flísar á gólfi. 
Svefnherbergi 5: Stórt svefnherbergi, fataskápur, stigi niður í geymslu, á teikningu er þetta gamli bílskúrinn, parket á gólfi.
Geymsla: Rúmgóð geymsla inn af herbergi.
Þvottahús: Rúmgott, vinnuborð og vaskur, hillur sem fylgja með, flísar á gólfi. 
Gestasalerni: Innrétting, upphengt salerni, flísar á gólfi og salerniskassa. 
Hitakompa:
Hitaveitugrind.
Bílskúr: Stærð 44,3 fm, kalt vatn, hiti (affall), gönguhurð af sólpalli á baklóð, bílskúrshurðaopnari, ómálað gólf. 

Efri hæð: 
Stofan / borðstofa: 
 Stór og björt stofa, innfelld lýsing í lofti, parket á gólfi.
Eldhús:  Endurnýjað 2020. Falleg svört / viðar lituð innrétting og stór eyja með skúffum, innbyggð uppþvottavél, tvöfaldur ísskápur sem fylgja með, bakaraofn, comby ofn / örbylgjuofn, háfur og spanhelluborð, borðkrókur, innfelld lýsing í lofti, útgengi út á sólpall á baklóð, flísar á gólfi.  
Baðherbergi: Svört innrétting, baðker, flísalagt í hólf og gólf. 
Hjónaherbergi:  Rúmgott, er á efri palli, hvítir fataskápar, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, er á efri palli, hvítur fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, er á efri palli, hvítur fataskápur, útgengi út á norður svalir, parket á gólfi. 
Svefnherbergi 4: Gott svefnherbergi, parket á gólfi. 
Gangur / stigi: Parket á gólfi.

Húsið: Húsið er steinsteypt og er byggt 1965 og bílskúr 1988. Húsið er á tveimur hæðum og á efri hæð er gengið upp á efri pall með þremur svefnherbergjum.
Lóð: Falleg og gróin 757,9 fm lóð. Framan við húsið er stór hellulögð innkeyrsla og steypt stétt að húsi, norður sólpallur framan við húsið.  Á baklóð er stór og skjólgóður suður sólpallur sem byggður var 2025.
Staðsetning: Smellið hér. 

Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi: 
* 2025 Nýr sólpallur á baklóð. Lagt rör fyrir heitan pott. 
* 2020 Gluggar endurnýjaðir í eldhúsi. Nýir gluggar í stofu fylgja með óuppsettir. 
* 2020 Eldhús endurnýjað m.a ný eldhúsinnrétting, uppþvottavél, spanhelluborð og háfur.
* 2019 Gestasnyrting endurnýjuð að hluta.
* Nýjar flísar á forstofu, stiga upp á efri hæð og eldhúsi. 
* Þakjárn hefur verið endurnýjað nýlega. 

Hér er um að ræða rúmgóða og vel staðsetta fjölskyldueign. Örstutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 

Þorlákshöfn:

Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er verið að byggja leikskólann Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.  

Ertu í fasteignahugleiðingum - Þarftu að selja eignina þína?  Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 893 3276.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/04/201930.750.000 kr.26.000.000 kr.246.3 m2105.562 kr.
14/03/201428.550.000 kr.32.500.000 kr.246.3 m2131.952 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1965
27 m2
Fasteignanúmer
2212593
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.350.000 kr.
Byggt 1988
44.3 m2
Fasteignanúmer
2212593
Byggingarefni
Múrsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
14.850.000 kr.

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Svölutjörn 63
106,9 aug.jpg
Skoða eignina Svölutjörn 63
Svölutjörn 63
260 Reykjanesbær
204.4 m2
Einbýlishús
514
523 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 (104)
Skjámynd 2026-06-05 135112.png
Vorbraut 14 (104)
210 Garðabær
115.6 m2
Fjölbýlishús
322
907 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Bröndukvísl 17
bröndukvísl 17.jpg
Skoða eignina Bröndukvísl 17
Bröndukvísl 17
110 Reykjavík
208.5 m2
Einbýlishús
625
719 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 39
lAUGAVEGUR39.jpg
Skoða eignina Laugavegur 39
Laugavegur 39
101 Reykjavík
123.3 m2
Fjölbýlishús
322
718 þ.kr./m2
88.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin