Fasteignaleitin
Skráð 18. ágúst 2026

Hólmgarður 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
62.4 m2
2 Herb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
1.040.064 kr./m2
Brunabótamat
34.050.000 kr.
Byggt 1951
Jarðhæð
Pallur
Fasteignanúmer
20351881
Húsgerð
Fjölbýlishús

Borg fasteignasala kynnir glæsilega, vel skipulagða, bjarta og mikið endurnýjaða tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi að Hólmgarði 8 í Reykjavík.  Eignin skartar dásamlegum suðurgarði með viðarverönd. Stærð íbúðarinnar er 62,4 m² og byggingarár hússins 1951. Húsið sjálft er steypt. Ytra byrði þess var filterað og málað árið 2025.

Nánari lýsing á eigninni:
Anddyri: Gengið er inn um sérinngang. Anddyrið var flísalagt og tekið í gegn árið 2022. Fataskápur og fatahengi.
Hol: Frá anddyri er komið inn í hol sem leiðir í allar helstu vistaverur íbúðarinnar. Ljóst parket sem flæðir fallega um eignina var lagt árið 2019 og allar innihurðir voru endurnýjaðar á sama tíma.
Eldhús: Eldhúsið var opnað og stækkað á sínum tíma en árið 2026 var það endurnýjað enn frekar. Innréttingin er skemmtilega uppsett, hvít og stílhrein með gylltum höldum, ljósum flísum á milli skápa og glæsilegri borðplötu með marmaraáferð. Gluggi er yfir vinnusvæði með nýju gleri og glerlistum (frá 2025). Góður borðkrókur er við hlið eldhússins.
Stofa og borðstofa: Stofan er opin, björt og  rúmgóð, með góðu plássi fyrir bæði setustofu og borðstofu. Árið 2022 voru settir nýir gluggar ásamt glæsilegri nýrri útihurð sem vísar beint út á suðurpall.
Baðherbergi: Baðherbergið var tekið í gegn árið 2026. Flísar í hólf og gólf með. Upphengt salerni. Stór sturta sem stúkuð er af með dökku sturtugleri, falleg vaskinnrétting ásamt spegli með innbyggðri lýsingu. Svört blöndunartæki, regnsturta og svartur handklæðaofn. Nýtt gler er í baðherbergisglugga.
Svefnherbergi: Svefnherbergið er rúmgott og bjart með stórum glugga sem snýr út í garðinn. Árið 2024 voru settir upp stórir og vandaðir fataskápar með góðu geymsluplássi.
Þvottahús og geymsla: Eigendur í húsinu hafa skipt á milli sín sameiginlegu þvottahúsi og er lokað á milli. Er þvottahúsið ekki í fermetratölu eignarinnar en gólfflöturinn er um 4 fm. Þvottahúsið var gert upp, flísalagt og snyrtilega frágengið undir bognum stiga þar sem er góð aðstaða fyrir bæði þvottavél og þurrkara ásamt geymsluplássi. Köld útigeymsla fylgir einnig eigninni úti í garði.
Lóð og ytra byrði: Lóðin er einkar falleg og vel hirt. Aftan við húsið er skjólgóður og gróinn suðurgarður. Árið 2020 var smíðuð glæsileg 40 m² viðarverönd út frá stofu sem býður upp á frábæra aðstöðu til útiveru. Gerður var nýr skjólveggur og girðing umhverfis garðinn árið 2025. Hávaxin tré og gróður ramma garðinn inn og skapa næði.

Yfirlit yfir framkvæmdir og endurbætur frá eiganda (2016-2026):
2026: Eldhús og baðherbergi tekin í gegn. Nýtt gler í baðherbergisglugga.
2025: Húsið filterað og málað að utan. Nýr skjólveggur og girðing sett umhverfis garðinn. Nýtt gler og glerlistar í glugga í eldhúsi.
2024: Nýir fataskápar settir upp í svefnherbergi.
2022: Nýir gluggar og útihurð sett garðmegin í suður. Þvottahúsi skipt í tvær séreignir og það gert upp. Anddyri flísalagt og gert upp.
2020: Nýr 40 m² pallur gerður í suðurgarði.
2019: Nýtt parket og innihurðir á alla íbúðina. Öll rými máluð.
2016: Nýtt þak á húsið.

Staðsetning: Frábær og barnvæn staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu sem er í göngufæri. Frábærar göngu- og hjólaleiðir við Fossvogsdalinn í næsta nágrenni. Fyrir ofan garðinn, sunnanmegin, er leiksvæði. Einfalt og fljótlegt er að komast inn á helstu stofnbrautir til allra átta.

Nánari upplýsingar veita: 
Úlfar Þór Davíðsson í síma 788-9030,  ulfar@fastborg.is
Ingimar Ingimarsson í síma 861-8458,  ingimar@fastborg.is 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 168 íb414 Heklureitur
Opið hús:23. ágúst kl 13:00-14:00
Laugavegur 168 íb414 Heklureitur
105 Reykjavík
76.6 m2
Fjölbýlishús
312
1095 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Skoða eignina Gnoðarvogur 22
Skoða eignina Gnoðarvogur 22
Gnoðarvogur 22
104 Reykjavík
73.9 m2
Fjölbýlishús
312
919 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 107
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hringbraut 107
Hringbraut 107
101 Reykjavík
51.6 m2
Fjölbýlishús
211
967 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Vallarbraut 6
Skoða eignina Vallarbraut 6
Vallarbraut 6
260 Reykjanesbær
74.4 m2
Fjölbýlishús
211
671 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin