ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu frábæra fyrstu kaupa eign á jarðhæð við Hólmgarð 2 B, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 208-9140 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Birt stærð 90.9 fm. Sérgeymsla á hæðinni er undanskilin birtri stærð.Nánari upplýsingar veitir Elín Frímanns Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.
Íbúðin hefur fengið endurbætur, en búið er að endurnýja eldhúsinnréttingu og baðinnréttingu ásamt gólfefnum.
Eignin er á eftirsóttum stað í Keflavík, þar sem grunnskóli og ýmis þjónusta eru í næsta nágrenni. Falleg og vel skipulögð íbúð sem vert er að skoða!
Nánari lýsing:Forstofa: Parket á gólfi og forstofuskápur.
Eldhús: Hvít innrétting, bakaraofn, helluborð og innbyggð uppþvottavél.
Stofa: Björt og opin með parketi á gólfi. Útgengt á suðursvalir með viðarklæðningu.
Baðherbergi: Hvít innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu.
Barnaherbergi: Parket og fataskápur.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi með parketi og rúmgóður fataskápur. Útgengt á svalir.
Þvottahús og geymsla: Á jarðhæð við hlið íbúðar er þvottahús sem er sameiginlegt með annarri íbúð, geymslan er til móts við íbúðina, er rúmgóð með hillum.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.