Huggulegt 5 herberg parhús á einni hæð á góðum stað í Hveragerði.
* Gott og viðhaldlítið hús klætt með flísum og bárujárni
* Byggt 2009 en innréttingar eru nýlegri
* Steypt innkeyrsla
* Sólpallur með skjólveggjum
* Gólfhiti er í húsinu og sér-stýring fyrir hvert rými.Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð samkv. HMS er 130,6 m2
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu / borðstofu, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.Forstofa er opin með gangi, flísar og parket á gólfi. Rúmgóður fataskápur.
Eldhús er með góðu skápaplássi, eldhúsyeju sem hægt er að sitja við. Þar er spanhelluborð og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa / borðstofa er opin með eldhúsi og bjart og gott alrými með stórum gólfsíðum gluggum og parket á gólfi. Útgengt út á sólpall.
Svefnherbergin eru fjögur öll með fataskápum og parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu með handlaug, upphengdu wc og baðkari með sturtu.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu.
Geymsla er flísalögð innan íbúðar.
Sólpallur er með skjólveggjum og þar er lokað skýli fyrir grill ofl.
Stutt er að sækja alla þjónustu, verslun, leik og grunnskóla sem og fallegar gönguleiðir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.