Um er að ræða raðhús á 2 hæðum sem er 105,3 fm skv. fasteignaskrá Þjóðskrár. Húsið er þó nokkuð stærra en uppgefin stærð þar sem hluti efri hæðar er undir súð auk þess sem gott risloft er yfir íbúðinni sem er nýtt sem herbergi í dag. Góð aðkoma, merkt bílastæði og sólpallur mót suðri.Eignin skiptist í; Forstofu, hol, gestasnyrtingu, eldhús og rúmgóða stofu og borðstofu, 3 svefnherbergi á efri hæð auk baðherbergis og herbergis í rislofti.
Nánari upplýsingar veita:
Halldór Freyr Sveinbjörnsson Lgf. í síma 693-2916 eða halldor@fastgardur.isNánari lýsing;
Anddyri: Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp.
Gestasnyrting næst forstofu er flísalögð með upphengdu salerni og handlaug.
Opið alrými tengist eldhúsi og rúmgóðu stofurými með stofu og borðstofu.
Eldhús er með fallegri innréttingu, vandaður bakaraofn, tengi fyrir uppþvottavél og gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp. Gluggi með opnanlegu fagi er í eldhúsi.
Stofan er í opnu og björtu rými með gluggum og hurð mót suðri en gengið er út á rúmgóðan, afgirtan sólpall frá stofunni.
Gólfin á neðri hæð eru flotuð.
Efri hæð; þar eru 3 góð svefnherbergi, hjónaherbergi með skápum og tvö góð barnaherbergi.
Baðherbergi er flísalagt og með walk in sturtu, upphengdu salerni, innréttingu og tenging fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.
Gott rými er á efri hæð fyrir framan svefnherbergin með góðum fataskápum. Frá holinu er hægt að komast upp á mjög snyrtilegt, manngengt risloft yfir íbúðinni sem er nýtt sem svefnherbergi í dag.
Geymsla: Við ingang hússins er sameiginleg geymsla með næsta húsi, þar eru inntök fyrir vatn og rafmagn og ágæt áhalda og hjólageymsla.
Lóðin: Út frá stofu er góð timburverönd með skjólveggjum sem snýr til suðurs. Möguleiki að að labba beint út á bílastæði frá sólpallinum.
Þetta er góð eign á góðum stað í Ártúnsholti, í rólegu hverfi þar sem örstutt er í aðalstofnæð borgarinnar. Afgirt verönd mót suðri. Stutt í leikskóla og skóla og alla þjónustu, göngu og útivistarsvæði.