Fasteignasala Þórshafnar kynnir:
Brekkustígur 2, 685 Bakkafirðier 114,1 fm íbúðarhús ásamt 32 fm bílskúr, samtals er eignin skráð 146,1 fm.
Hús (byggt 1995) og skúr (byggður 2002) eru byggð úr timbri, tvíhalla þak og standandi timburklæðning á útveggjum.
Húsið skiptist í:
Forstofa, flísar á gólfi, fataskápur og fatahengi.
Þvottahús og geymsla eru til hægri úr forstofu, máluð gólf og hillur á veggjum geymslu.
Inn af forstofu er gangur eftir endilöngu húsinu, á hægri hönd er gengið út á hellulagða verönd. Þeim megin
er gengið niður tvær tröppur í
stofu sem er útskot úr húsinu, gluggar á þrem veggjum og korkur á gólfi.
Vinstra megin við gang er fyrst komið að
eldhúsi sem er líkt og stofa í útskoti úr húsinu, gluggar í tvær áttir, upphafleg innrétting í þokkalegu standi og korkur á gólfi. Við hlið eldhúss er
svefnherbergi með fataskáp og kork á gólfi, við hlið þess er
baðherbergi, þar er baðkar, wc á gólfi, handlaug í lágum skáp og hár skápur á gagnstæðum vegg. Flísar á gólfi og upp undir miðja veggi.
Við hlið baðherbergis eru
tvö svefnherbergi til viðbótar, minna herbergið með fataskáp og kork á gólfi og hjónaherbergi með stórum fataskáp og kork á gólfi.
Loft eru flest panelklædd og fylgja þakhalla og setja fallegan svip á vel hannað hús.
Við enda hússins stendur 32 fm bílskúr, þar er málað gólf, rafdrifin bílskúrshurð og gönguhurð sem snýr að húsi.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 8592925 eða tölvupósti srk66@simnet.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Þórshafnar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.