LÓB fasteignir kynnir eignina Fannborgartangi 2, 846 Flúðum, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 252-8387 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Um er að ræða parhús í byggingu sem er í heildina með birta stærð 164.5m2 sem skiptist í íbúðarrými 126,2m2 og bílskúr 38,3m2. Um er að ræða hluta af parhúsinu Fannborgartangi 2-4 og möguleiki á að kaupa allt húsið í heild sinni það er Fannborgartanga 4 einnig. Teikning eignarinnar gerir ráð fyrir 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, stofu, eldhús og þvottahús. Innangengt í bílskúr.
Hægt er að kaupa eignina fokhelda, á rúmlega fokheld og einnig fullbúna. Eignin er staðsett nyrst á Flúðum í nýju hverfi í uppbyggingu.Ásett verð miðað við afhendingu:
Fokheld kr. 59.000.000,- eða um það bil 359.000 kr./m2 (skilalýsing að neðan)
Rúmlega Fokheld: 62.000.000,- eða um það bil 376.000,- kr./m2 (Viðbótarskilalýsing neðst) - myndir að innan úr sambærilegri eign á sama stigi.
Byggingarstig 4 - Fullbúin með innréttingum, tækjum og gólfefni kr. 84.900.000 eða um það bil 516.000 kr./m2. (skilalýsing fæst hjá fasteignasala)á öllum byggingarstigum er skipulagsgjald ógreitt og greiðist af kaupanda.
Fokhelt (skilalýsing)Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd. Þ.e. byggingarlóð, gatnagerð, byggingarleyfisgjald og stofngjald holræsa. Inntaksgjöld rafmagns,kalda vatns og hitaveitu eru ógreidd.
Skipulagsgjald kemur til greiðslu síðar og er ógreitt við afhendingu.Teikningar Teikningar eru: Byggingarnefndarteikningar, glugga- og hurðateikningar, burðarvirkisteikningar þ.e. undirstöður, veggir og þak, lagnateikningar þ.e. frárennsli, neysluvatns- og hitalagnir, ásamt rafmagnsteikningum.
Gröftur og fylling Grafið er niður á fast undirlag og fyllt í með grófri möl sem síðan er þjöppuð og þjöppumæld.
SökklarSökklar eru að hámarki 1200mm háir. Járnabinding er 2xK12 efst og neðst í sökkli, einföld 6mm járnamottugrind og K10 í tengijárn við plötu. Einangrun á innanverða sökklulveggi er 16kg/75mm plasteinangrun. Steypa er af gerðini S-250.
BotnplataJárnabinding er einföld 6mm járnamottugrind. Einangrun undir plötu er 16 kg/100mm plasteinangrun. Steypa er af gerðinni S-250. Botnplata er slödduð. Ath það má reikna með að það þurfi að steinslípa og flota.
LagnirSkolp-og rengnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu.
Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu en þó ekki tengdar við tengikistur og nema. Rör í rör kerfi er fyrir neysluvatn undir botnplötu en ótengt.
Útveggir145x45 mm styrkleikaflokkað timbur. 9 mm krossviður til stífingar. 28x60 mm loftunargrind.
Klæðning: Liggjandi báruál (litur: Jökull ral 7035) og standandi hvít timburklæðning.
ÞakKraftsperruþak með 14° halla. Klæðning: Borð, þakpappi og svört bárujárnsklæðning.
ÞakkanturVindskeiðar úr svörtu áli með álrennum (innfeldar). Undirklæðning: Svört 20x95 mm vatnsklæðning með 20 mm loftbili. Festing: Ryðfrí hefting.
Hurðir og gluggarÚtihurðir og gluggar eru ál-tré .ATH að það gæti þurft að mála eina umferð á glugga og hurðir að innan.
Bílsskúrshurð er hefðbundinn flekahurð frá Vögnum og þjónustu.
Bílskúr.Bílsskúr afhendist á því stigi að búið er að klæða 2 falt gips á brunavegg bílsskúrsmeginn og 1 földu lagi íbúðarmegin. Loft og útveggir með 2 földu gipslagi og hefðbundnum rafmagnsgrindar og rakasperrufrágang. Ath ómálað. Gert er ráð fyrir að allt rafmagn í bílsskúr sé utanáliggjandi.
LóðarfrágangurLóð er grójöfnuð en búið að jarvegsskipta í bílaplani. Innkeyrsla skilast með grófjafnaðri grús.
Afhendist með 3 hólfa ruslatunnuskýli.
Rúmlega fokheld - ásett verð kr. 62 milljónir:Ef eignin er keypt rúmlega fokheld þá skilast hún samkvæmt ofangreindri skilalýsingu með eftirfarandi viðbótum:
- Húsið einangrað
- Rakasperru komið fyrir
- Rafmagnsgrind
- Inntök og bráðabirgðatenging á hitaveitu
- Rafmagnstafla komin og tengd.
- Myndir að innan sýnir sambærilega eign á sama stigi
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Kristófer Ara, löggiltur fasteignasali og lögfræðingur í síma 695-6134 eða kristo@olafur.is, skrifstofusími: 416-2223Skoðunarskylda kaupanda og upplýsingaskylda seljanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Vakin er athygli á því að í lýsingu á söluyfirliti kemur fram herbergjafjöldi eignarinnar. Sé eignin keypt fokheld eða rúmlega fokheld þá skilast eignin í ástandi miðað við skilalýsingu og auglýstur herbergjafjöldi er einungis skv. teikningu eignarinnar.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 55.000 auk vsk.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Allar nánari upplýsingar hjá Lögmannsstofu Ólafs Björnssonar s. 416-2220 – Eyravegi 15, 800 Selfoss