Helgafell fasteignasala ehf. og Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna mikið endurnýjaða og rúmgóða 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð til vinstri við Háaleitisbraut 32 í Reykjavík. Fjölbýlishúsinu er mjög vel við haldið. Nýjar hurðar og ný gólfefni á herbergjum og alrými sem og nýjir fataskápar á svefnherbergisgangi og í hjónaherbergi. Góðar djúpar nýflísalagðar svalir. Fjórar hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla á sameiginlegu bílaplani. Eigninni fylgir bílskúrsréttur.SMELLIÐ HÉR TIL ÞESS AÐ NÁLGAST SÖLUYFIRLIT EIGNARINNARNánari lýsing:Forstofa / hol - harðparket á gólfi og góður fataskápur.
Eldhús - harðparket á gólfi - góð innrétting - keramikk helluborði og vifta - flísar á milli efri og neðri skápa - uppþvottavél fylgir.
Baðherbergi - flísalagt í hólf og gólf - baðkar með sturtuaðstöðu - góð innrétting - gluggi.
Stofa / Borðstofa - mjög björt og rúmgóð - harðparket á gólfi - útgengt á góðar djúpar nýflísalagðar svalir sem snúa í vestur.
Svefnherbergisgangur - harðparket á gólfi - hurð inn á ganginn - nýjir rúmgóðir fataskápar.
Hjónaherbergi (1) - rúmgott - harðparket á gólfi - nýjir fataskápar - útgengt á svalir.
Herbergi (2) - harðparket á gólfi.
Herbergi (3) - harðparket á gólfi.
Sameiginlegt
þvottahús með þremur öðrum íbúðum í sameign á jarðhæð - hver íbúð með sína vél - nýtt epoxylakk á gólfi sameignar og sorpgeymslu.
Geymsla í sameign á 1. hæð með hillum.
Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla.
Lóðin öll er mjög snyrtileg og næg bílastæði.
Um er að ræða vel staðsetta eign á vinsælum stað miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í almenningssamgöngur og alla þjónustu, svo sem verslanir, leikvöll, leikskóla, skóla og framhaldsskóla sem og íþróttasvæði Víkings við Safamýri. Þá er útivistarsvæði í Laugardalnum í göngufæri.
Framkvæmdir við sameign hússins síðustu ár:Húsið er í reglubundu viðhaldi og síðustu ár hefur eftirfarandi verið endurnýjað: Allir gluggar íbúðarinnar á austurhlið hússins. Frárennslislagnir (klóak, skolp og dren). Múrviðgerðir á austurhlið hússins og báðum göflum og verið er að mála húsið
á kostnað seljanda.
Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Sv. Friðriksson í síma 842 2217 / gunnar@helgafellfasteignasala.is