Lind fasteignasala og Ómar Hvanndal löggiltur fasteignasali kynna til sölu sjarmerandi 69 fermetra, 3ja - 4ra herbergja íbúð á 2. hæð við Hverfisgötu 55 í miðbæ Hafnarfjarðar. Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is.Nánari lýsing:
Komið er inn í sameiginlega forstofu þar sem gengið er upp stiga að íbúðinni.
Forstofa/hol innan íbúðarinnar með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og opnum fataskápum.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með dúk á gólfi. Baðkar með sturtuaðstöðu.
Eldhús er rúmgott með ljósri innréttingu.
Samliggjandi stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Í stofu eru stórir og bjartir gluggar til suðvesturs.
Úr íbúðinni er aðgengi uppá háaloft sem áður var nýtt sem svefnherbergi en það er ekki skráð inn í fermetratölu íbúðarinnar.
Í kjallara hússins er 24,9 fermetra séreignarrými sem tilheyrir íbúðinni en það er nýtt sem geymsla og þvottahús.
Stór og gróinn garður fylgir húsinu.
Einungis eru tvær íbúðir í þessu frábærlega staðsetta húsi í hjarta miðbæjarins í Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal löggiltur fasteignasali og lögmaður, í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is.-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.