Fasteignaleitin
Skráð 23. apríl 2024
Deila eign
Deila

Núpahraun 15

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
135.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.400.000 kr.
Fermetraverð
437.086 kr./m2
Fasteignamat
57.850.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2515318
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýjar.
Raflagnir
Nýjar.
Frárennslislagnir
Nýjar.
Gluggar / Gler
Nýjir.
Þak
Nýtt.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
3 - Burðarvirki fullreist
Matsstig
3 - Risin bygging
*** NÝTT MIÐJURAÐHÚS MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR ***
Helgafell fasteignasala, Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Ragnheiður Árnadóttir í námi til löggildingar kynna vel skipulagt og fallegt 4ra herbergja miðjuraðhús með innbyggðum bílskúr. Birt heildarstærð eignar er 135,9 fm. og þar af er 26,1 fm. innbyggður bílskúr. Húsið er hluti af Núpahrauni 13-17 sem eru þrjú raðhús sem staðsett eru í glænýju hverfi í vestur jaðri Þorlákshafnar. Stutt er í alla helstu þjónustu skóla, og leikskóla, íþróttaaðstöðu og falleg útivistarsvæði.  

Eignin skilast tilbúin til innréttingar samkvæmt byggingarstigi 5 og að auki er búið að sparsla og grunna alla innveggi. Möguleiki er á að fá húsið lengra komið eftir samkomulagi.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Verð á byggingarstigi 5 - tilbúið til innréttingar: 59.4 milljónir. 
Verð á byggingarstigi 7 - fullgerð bygging: 73.4 milljónir. 


Eignin skiptist í anddyri, 3 svefnherbergi, stofu / borðstofu með útgengi út í garð og eldhús í opnu alrými, baðherbergi, þvottahús, gangur,  bílskúr (innangengt úr anddyri).

Frágangur utanhúss:
Útveggir: Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með svartri liggjandi álbáru. Endanlegur litur á húsunum getur verið annar en kemur fram á teikningu.
Þak: Á þaki er svart bárujárn. Þakkantar eru frágengnir og lagt fyrir útiljósum. Vindskeiðar verða komnar og fúavarðar. Þakrennur og niðurföll verða frágengin
Gluggar og útihurðir: Gluggar og útihurðir verða fullfrágengin og glerjað. Gluggar eru úr timbri og eru álklæddir. Málmaksturshurð er í bílskúrnum.  
Aðgengi og lóð: Lóð og bílaplan eru grófjöfnuð. Ruslaskýli eru frágengin.

Frágangur innanhúss:
Gólf: 
Gólfplata verður flotdregin (er slípuð).
Veggir og loft: Kraftsperrur eru í húsinu og öll loft niðurtekin. Allir milliveggir verða komnir og brunaveggur milli húss og bílskúrs. Innveggir eru tvöfaldur klæddir með gifsplötum. Loft klædd með gifsplötum. Innveggir eru sparslaðir og grunnaðir.
Innihurðir: Engar innihurðar eru komnar í húsið.
Hitalögn: Ísteyptar hitalagnir verða í öllum gólfum og verður tengigrind fyrir gólfhita frágengin. Stýringar og annar búnaður gólfhita fylgir ekki.
Rafmagn: Búið er að leggja út ídráttarrör og dósir og draga fyrir vinnurafmagni. Rafmagnstaflan er frágengin miða við byggingarstig 5. 
Neysluvatnslagnir: Eru tengdar við stofninntak, fullgerðar og frágengnar að tækjum.

Áætlaður afhendingartími á byggingarstigi 5 er í apríl 2024 eða fyrr. 

Annað: 
Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita sem og lóðargjald.
Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald sem er innheimt við endanlegt brunabótamat.
 
Byggingaraðili: SÁ hús ehf.

Meðfylgjandi myndir eru 3D teikningar og endurspegla ekki endanlegt útlit.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:
Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, í s: 893-3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Ragnheiður Árnadóttir, löggiltur fasteignasali, í s: 697-6288 eða í netfangið ragnheidur@helgafellfasteignasala.is    

Þorlákshöfn:
Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
26.1 m2
Fasteignanúmer
2515318
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
05
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
3 - Risin bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyjahraun 27
Skoða eignina Eyjahraun 27
Eyjahraun 27
815 Þorlákshöfn
128.2 m2
Einbýlishús
524
484 þ.kr./m2
62.000.000 kr.
Skoða eignina Ólafsvellir 29
Skoða eignina Ólafsvellir 29
Ólafsvellir 29
825 Stokkseyri
105.5 m2
Raðhús
413
564 þ.kr./m2
59.500.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut 6
Skoða eignina Hraunbraut 6
Hraunbraut 6
805 Selfoss
100.2 m2
Raðhús
413
618 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunbraut 6
Skoða eignina Hraunbraut 6
Hraunbraut 6
805 Selfoss
100.2 m2
Raðhús
413
618 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache