Fasteignaleitin
Skráð 22. maí 2026

Háaberg 39

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
322 m2
8 Herb.
4 Svefnh.
Verð
199.000.000 kr.
Fermetraverð
618.012 kr./m2
Fasteignamat
189.500.000 kr.
Brunabótamat
170.950.000 kr.
Mynd af Þórey Ólafsdóttir
Þórey Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignalisti
Garður
Fasteignanúmer
2075090
Landnúmer
120687
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
endurbætt að hluta
Raflagnir
Endurbætt að hluta
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
endurbætt eftir þörfum
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðvestur svalir
Lóð
100
Upphitun
hitaveita
Gallar
Vert er að benda á að innra skipulag er ekki í samræmi við núverandi skipulag og komin er viðhaldsþörf á gluggum í vinnurými/setustofu en þar hefur verið leki.
Kvöð / kvaðir
Vert er að taka fram að búið var um rúm og endurraðað í fataherbergi með chatGPT
LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu einstaklega rúmgott og mikið endurbætt einbýlishús á tveimur hæðum með auka íbúðareiningu á þessum eftirsótta stað í Setbergshverfinu í Hafnarfirði, við Setbergstóft sem er friðuð og golfvöllinn. Eignin nýtur fallegrar staðsetningar í jaðri hverfisins með miklu útsýni, góðri birtu og stuttri tengingu við náttúru, golfvöll og útivistarsvæði.

Um er að ræða glæsilega og vel skipulagða eign með fallegu útsýni, aukinni lofthæð og skjólgóðum garði með stórum timburpöllum og heitum potti. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og hönnuð með vönduðu efnisvali undir handleiðslu Rut Káradóttur innanhússarkitekts. Vert er að benda á að innra skipulag eignarinnar er ekki í samræmi við samþykktar teikningar.

Á neðri hæð hússins er opið forrými ásamt glæsilegri hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi. Þaðan er útgengt á skjólgóðan timburpall með heitum potti. Á efri hæð er mikil lofthæð og bjart opið alrými með vönduðu eldhúsi, stofu og borðstofu. Auk þess eru þar barnaherbergi, vinnurými/setustofa, baðherbergi og þvottahús. Bílskúr hefur verið breytt í sjálfstæða íbúðareiningu með sérinngangi sem nýtist vel til útleigu, fyrir ungmenni eða sem hluti af heimilinu.

Birt stærð eignarinnar er 322 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr skráður 41 fm.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is

Nánari lýsing, neðri hæð
Forstofa
með fataskáp, steinn á gólfi.
Hjónasvíta með sérsmíðuðum innréttingum og fataherbergi, parket á gólfi og útgengi á verönd.
Baðherbergi innaf hjónaherbergi, flísalagt með sérsmíðaðri innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu.
Geymsla og tæknirými - innangengt í íbúðareiningu.

Nánari lýsing, efri hæð
Eldhús
með vandaðri ítalskri Arclinea innréttingu, stórri eldhúseyju og vönduðum tækjum, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með fallegum arni og mikilli lofthæð, parket á gólfi. Úútgengi á suðvestursvalir og timburverönd aftan við hús.
Vinnurými/setustofa með flísum á gólfi og útgengi á timburverönd.
Barnaherbergi með fataskáp og parketi á gólfi, útgengt á suðvestursvalir.
Bókaherbergi, parket á gólfi en má nýta sem svefnherbergi.
Baðherbergi með sérsmíðaðri innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu, steinn á gólfi og í sturtu.
Þvottahús innaf baðherbergi með tengi fyrir vélar í skápum og baðkari, steinn á gólfi.

Nánari lýsing, íbúðareining (bílskúr)
Forstofa
með flísum á gólfi.
Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými með parketi á gólfi.
Svefnrými með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi flísalagt að mestu með innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.

Húsið var byggt árið 1992 en hefur á síðustu árum verið mikið endurnýjað undir handleiðslu Rut Káradóttur innanhússarkitekts á árunum 2007-2015. Meðal breytinga má nefna að neðri hæð hússins var endurhönnuð og útbúin sem glæsileg hjónasvíta, innra skipulagi efri hæðar breytt og eignin öll endurbætt með vönduðu efnisvali og heildstæðri hönnun.

Lóðin er fullfrágengin, falleg og einstaklega skjólsæl með stórum timburpöllum, skjólveggjum, heitum potti og grasflöt. Innbyggðir geymsluskúrar eru bæði ofan og neðan við hús. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu.

Frábær staðsetning í jaðri Setbergshverfisins, rétt við golfvöllinn og í nálægð við skóla, leikskóla, þjónustu og falleg útivistarsvæði.
 
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
 
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (67)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Baughamar 5 íb. 405
Opið hús:26. maí kl 17:00-18:00
Baughamar 5 íb. 405
221 Hafnarfjörður
92.1 m2
Fjölbýlishús
312
802 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 íb. 404
Opið hús:26. maí kl 17:00-18:00
Baughamar 5 íb. 404
221 Hafnarfjörður
95.5 m2
Fjölbýlishús
43
795 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 íb. 403
Opið hús:26. maí kl 17:00-18:00
Baughamar 5 íb. 403
221 Hafnarfjörður
63.4 m2
Fjölbýlishús
211
953 þ.kr./m2
60.400.000 kr.
Skoða eignina Baughamar 5 íb. 402
Bílastæði
Opið hús:26. maí kl 17:00-18:00
Baughamar 5 íb. 402
221 Hafnarfjörður
116.2 m2
Fjölbýlishús
423
769 þ.kr./m2
89.400.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin