Fasteignaleitin
Skráð 31. mars 2025

Höfði 20

FjölbýlishúsNorðurland/Húsavík-640
82.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
35.400.000 kr.
Fermetraverð
431.181 kr./m2
Fasteignamat
30.900.000 kr.
Brunabótamat
39.450.000 kr.
Garður
Fasteignanúmer
2276557
Landnúmer
150530
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+hlaðið
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Talið í lagi
Raflagnir
Talið í lagi
Frárennslislagnir
Talið í lagi
Gluggar / Gler
Talið í lagi
Þak
Talið í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Lögeign kynnir eignina Höfði 20, 640 Húsavík, nánar tiltekið eign merkt 02-03.

Um er að ræða vel skipulagða, tveggja svefnherbergja íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi byggt árið 1969. Árið 2015 var húsið einangrað og klætt að utan með bárujárni og tveimur árum áður (árið 2013) var þakjárn endurnýjað. Íbúðin er 82,1M² og er björt og með svölum með flottu útsýni. 
Nánari lýsing: Forstofa, geymsla, stofa, tvö svefnherbergi, eldhús og baðherbergi.

Komið er inn í flísalagða forstofu, inn af forstofu er bæði geymsla sem er flísalögð og hol. Stofan er parketlögð og er í opnu rúmgóðu rými með eldhúsinu, útgengt er út á svalir með flottu útsýni úr stofunni. Í eigninni eru tvö svefnherbergi sem eru bæði staðsett í holinu og eru bæði með fataskáp. Eldhúsið er með hvítri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum, nýr bakarofn og helluborð ásamt nýjum búrskáp sem er góð viðbót við innréttinguna.
Baðherbergið er með sturtubaðkari, hvítri vaskainnréttingu, hvítum skáp, wc og tengi fyrir þvottavél. 

Að utan:
Bílastæði er fyrir utan eignina og sem er malbikað. Skipt var um þakjárn á húsinu árið 2013 og var allt húsið einangrað og klætt að utan árið 2015. Lekavandamál voru í eigninni og voru þau talin tengjast leka á baðherbergi á efri hæð. Eigandi hefur ekki orðið var við leka síðan hús var klætt að utan og farið var í framkvæmdir á baðherbergi upp. Mögulegum kaupendum er þó bent á að kynna sér þetta vel.


Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/05/202527.750.000 kr.33.000.000 kr.82.1 m2401.948 kr.
22/06/202119.400.000 kr.24.900.000 kr.82.1 m2303.288 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Lögeign
www.logeign.is

Myndir (21)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dalsbraut 5
Skoða eignina Dalsbraut 5
Dalsbraut 5
260 Reykjanesbær
104 m2
Fjölbýlishús
413
672 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Dalsbraut 28 - 201
Dalsbraut 28 - 201
260 Reykjanesbær
106.9 m2
Fjölbýlishús
413
654 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Skyggnisholt 4
Skoða eignina Skyggnisholt 4
Skyggnisholt 4
190 Vogar
99.9 m2
Fjölbýlishús
413
650 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Vatnsstígur 19
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Vatnsstígur 19
Vatnsstígur 19
101 Reykjavík
85 m2
Fjölbýlishús
211
999 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin