Fasteignaleitin
Skráð 5. sept. 2024
Deila eign
Deila

Njálsgata 64

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
89.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
78.900.000 kr.
Fermetraverð
881.564 kr./m2
Fasteignamat
71.550.000 kr.
Brunabótamat
45.600.000 kr.
Mynd af Matthildur Sunna Þorláksdóttir
Matthildur Sunna Þorláksdóttir
Fasteignasali
Byggt 1927
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2008183
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Svalir
Gengið út frá hjónaherb. og baðherb.
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
TORG FASTEIGNASALA KYNNIR Í SÖLU: Björt, þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð, í þríbýli, við Njálsgötu 64, 101 Reykjavík. Íbúðin er í reisulegu húsi á horni Barónstígs og Njálsgötu á góðu stað í miðbæ Reykjavíkur. Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskólaverslun, veitingastaði og sundlaug. Íbúðin var mikið endurnýjuð 2021. Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða matthildur@fstorg.is

Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með aðstöðu fyrir fatahengi.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í alrými, eldhús er með hvítri innréttingu, viðarborðplötu og efri skápum. Stofa er björt, með þremur gluggum til norðausturs.
Hjónaherbergi var gert úr hluta af stofu, það er rúmgott og bjart og með aðgengi út á svalir til suðurs.
Barnaherbergi er einnig rúmgott, með stórum glugga.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með ljósgráum flísum, hvít skúffueining er undir vask og efri speglaskápur. Innbyggður klósettkassi, sturta, handklæðaofn og aðstaða fyrir þvottavél er á baðherbergi. Gengið er út á sömu svalir til suðurs frá baðherbergi.
Geymsla er innan íbúðar.
Gólfefni íbúðar er harðparket, fyrir utan baðherbergi.

*Ekkert formlegt húsfélag er virkt í húsinu, annað en að halda utan um sameiginlegan kostnað fyrir sameign.

*Vakin skal athygli á að geymsla ofangreindrar íbúðar er í dag innan íbúðarinnar. Eldri geymsla á 5. hæð fylgir ekki íbúðinni í dag. Samkvæmt núverandi skráningu (fasteignayfirlit ríkisins) er geymsla á 5. hæð, merkt 01 0502, stærð 6,1 fm, enn skráð sem fylgifé en búið er að breyta allri 5. hæðinni í séreign íbúðar merkt 01 0401. Búið er að gera drög að nýjum eignaskiptasamningi, þar sem íbúð 01 0301 er skráð 89,5 fm samkvæmt nýrri skráningartöflu sem gerð var við breytingu á nýtingu hússins. Þeim eignaskiptasamning hefur ekki verið þinglýst.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.       
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/12/202148.800.000 kr.56.900.000 kr.91.9 m2619.151 kr.
27/10/202047.650.000 kr.140.000.000 kr.359.7 m2389.213 kr.Nei
07/04/201632.700.000 kr.140.000.000 kr.359.7 m2389.213 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vitastígur 9A - íb.201
Vitastígur 9A - íb.201
101 Reykjavík
69.6 m2
Fjölbýlishús
21
1148 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Grettisgata 46 - Íb. 302
Grettisgata 46 - Íb. 302
101 Reykjavík
94.4 m2
Fjölbýlishús
212
804 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Hverfisgata 94
3D Sýn
Bílastæði
Opið hús:09. sept. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Hverfisgata 94
Hverfisgata 94
101 Reykjavík
82 m2
Fjölbýlishús
211
974 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Vesturvin V1 íb 309
Vesturvin V1 íb 309
101 Reykjavík
69.7 m2
Fjölbýlishús
211
1118 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin